Erlent

Aðeins 16% Bandaríkjamanna líkar við hegðun Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump hefur ítrekað logið um hin ýmsu mál og varið hvíta þjóðernissinna eftir að hann tók við sem forseti.
Trump hefur ítrekað logið um hin ýmsu mál og varið hvíta þjóðernissinna eftir að hann tók við sem forseti. Vísir/AFP
Framferði Donalds Trump í embætti forseta fellur ekki kramið hjá rúmum meirihluta Bandaríkjamanna. Ný skoðanakönnun bendir til þess að aðeins þriðjungi repúbikana líki við heðgun hans.

Könnun Pew-rannsóknamiðstöðvarinnar sýnir að 58% svarenda er kann ekki við hvernig Trump hefur komið fram sem forseti á fyrstu sjö mánuðum valdatíðar sinnar. Fjórðungur hefur blendnar tilfinningar um hegðun hans en aðeins 16% segjast kunna að meta hana, að því er kemur fram í frétt Washington Post.

Þegar svörin eru brotin niður eftir pólitískum hneigðum þátttakenda kemur í ljós að aðeins 34% repúblikana og þeirra sem hallast að flokknum líki við hegðun forsetans. Rétt tæpum fimmtungi þeirra líkar ekki við hvernig hann hegðar sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×