Fulltrúar Barcelona mættir til Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 12:00 Philippe Coutinho. Vísir/Getty
Spænskir fjölmiðlar búast við því að Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho verði orðinn leikmaður Barcelona áður en þessi dagur er að kvöldi kominn. Spænska blaðið Sport slær því upp að fulltrúar Barcelona séu komnir til Liverpool til að ganga frá kaupunum á Coutinho. Samkvæmt heimildum Sport hafa eigendur Liverpool samþykkt að selja Coutinho en knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp hefur verið harður á því að Brasilíumaðurinn sé ekki til sölu. Klopp ræður hinsvegar greinikega litlu þegar það kemur svona risatilboð í leikmann félagsins. Liverpool mun fá 90 milljónir evra fyrir Philippe Coutinho en auk þess munu árangurstengdir bónusar bætast við ef marka má heimildi Sport-blaðsins. Barcelona sér fyrir sér að Philippe Coutinho fylli í skarð Neymar sem fór til Paris Saint Germain fyrir 222 milljónir evra í síðustu viku. Philippe Coutinho var með 13 mörk og 7 stoðsendingar í 31 leik í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann gerði oft út um leiki á móti bestu liðum deildarinnar og er Liverpool-liðinu gríðarlega mikilvægur. Liverpool keypti þennan 25 ára Brasilíumann frá ítalska félaginu Internazionale fyrir 8,5 milljónir punda i janúar 2013 og hann hefur því tífaldast í verði þessi rúmu fjögur ár hans á Anfield.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira