Nýr Kia Optima SW í Plug-in Hybrid útfærslu Finnur Thorlacius skrifar 28. júlí 2017 11:25 Kia Optima fæst nú einnig í Plug In Hybrid út6færslu.
Kia hefur kynnt til leiks nýjan Optima Sportwagon í Plug-in Hybrid útfærslu. Bíllinn er með tengiltvinnvél sem samanstendur af 68 kílówatta rafmótor og tveggja lítra GDI bensínvél. Samanlagt skilar tengiltvinnaflrásin 205 hestöflum og 375 Nm í togi. Rafmótorinn skilar 49 hestöflum ef ekið er einungis á rafmagninu. Bíllinn er með 62 km drægni á rafmagninu við bestu hugsanlegu aðstæður sem er með því lengsta sem þekkist í flokki tengiltvinnbíla. Útblástur Kia Optima SW Plug-in Hybrid er einungis 33 g/km sem er lægsta koltvísýringslosun í þessum stærðarflokki bíla. Kia hefur lagt mikið í að ná fram sem bestum aksturseiginleikum í bílnum og góðum þægindum í akstrinum. Kia Optima SW Plug-in Hybrid er vel búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Kia. Nýr 8 tommu snertiskjár er áberandi í fallegu innanrými bílsins og býður upp á tengimöguleika við Android Auto og Apple CarPlay. Bíllinn er mjög rúmgóður fyrir farþega og farangursrýmið er alls 440 lítrar með aftursætin í uppréttri stöðu sem er með því besta í þessum stærðarflokki. Bíllinn verður kynntur í byrjun september hjá Bílaumboðinu Öskju.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent