Sölvi Geir á leið aftur til Kína Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. júlí 2017 18:30 Sölvi Geir í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Fótboltamaðurinn Sölvi Geir Ottesen er ekki á heimleið alveg strax en hann er á leiðinni aftur til Kína að spila í kínversku ofurdeildinni, samkvæmt heimildum Vísis. Hann hefur verið á Íslandi undanfarnar vikur og meðal annars rætt við uppeldisfélag sitt Víking í Reykjavík og FH, samkvæmt heimildum Vísis, en hann ákvað að taka samningi sem honum bauðst í Kína. „FH er spennandi kostur,“ sagði Sölvi Geir við Morgunblaðið á dögunum en hann æfði með FH í byrjun árs. Hafnafjarðarliðið var í leit að miðverði fyrir mótið og Heimir Guðjónsson sagði í viðtali við fotbolti.net á dögunum að allir hefðu áhuga á miðverðinum sterka. Sölvi spilaði síðast með Buriram United í Taílandi en gerði þar starfslokasamning í síðasta mánuði. Þar áður var hann hjá Wuhan Zall í B-deildinni í Kína en hann fór fyrst þangað til að spila með Jiangsu Sainty árið 2015. Sölvi Geir yfirgaf FC Kaupmannahöfn eftir góð ár þar árið 2013 til að spila í Rússlandi. Hann var fastamaður í landsliðshópnum um árabil og á að baki 28 landsleiki. Síðast spilaði hann fyrir íslenska landsliðið í janúar 2016.
Íslenski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira