Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að dásamlegri morgunverðarböku.
Morgunverðarbaka með kartöflum, beikoni og eggjum
1 msk ólífuolía
¼ blaðlaukur, smátt skorinn
150 g kurlað beikon
1 rauð paprika, smátt skorin
1 hvítlauksrif, marin
4 bökunarkartöflur, skornar í teninga
salt og nýmalaður pipar
10 kirsuberjatómatar
4 – 5 egg fersk
Steinselja
Parmesan ostur
Aðferð:
Hitið ofninn i 180°. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn við vægan hita þar til laukurinn verður mjúkur.
Bætið beikonkurlinu, paprikunni og hvítlauknum út á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur. Bætið kartöfluteningum saman við og kryddið með salti og pipar.
Setjið blönduna í eldfast mót þegar kartöflurnar eru eldaðar í gegn. Skerið niður kirsuberjatómata og dreifið yfir. Brjótið eggin yfir og bakið við 180°C í ca. 10 mínútur eða þar til eggin eru fullelduð. Þegar kartöflubakan kemur út úr ofninum er gott að saxa niður ferska steinselju og strá yfir réttinn ásamt því að rífa duglega niður af parmesan osti.