Hagl á stærð við golfbolta rústar bíl. Finnur Thorlacius skrifar 10. maí 2017 10:26 Framrúðan brotin af stóru hagléli.
Þeir voru ekki öfundsverðir vegfarendurnir í Colorado í Bandaríkjunum sem lentu í mögnuðu hagléli þar í fyrradag. Hagl getur verið afar misjafnt að stærð og því misvont að fá það í sig. Þá er ef til vill betra að vera inní bíl en gangandi við þær aðstæður að hagl á stærð við golfbolta fellur úr skýjunum. Það var það sem gerðist einmitt í Colorado og svo stór högl eiga það til að brjóta framrúður bíla og beygla ytra byrði þeirra verulega. Hér má sjá þegar haglélið gengur yfir, eyðileggur framrúðuna og lemur bílinn svo myndarlega að óhugsandi er að ekki sjái á honum. Ætla má að allir þeir bílar sem urðu fyrir þessu hagléli hafi skemmst, en bílasala ein sem selur Toyota og Lexus bíla varð einnig fyrir barðinu á haglélinu og þar skemmdust hundruðir bíla. Það verður nóg að gera á réttingarverkstæðunum í Colorado á næstu vikum, sem og hjá þeim sem skipta um framrúður í bílum.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent