Flottasta bílasalan Finnur Thorlacius skrifar 16. maí 2017 09:52 Mjög athygliverð bygging sem tekur ekki mikið landrými.
Þessi sérstaka bílasala var opnuð Í Singapore fyrir skömmu en þar eru seldir notaðiur lúxusbílar, t.d. af gerðunum Bentley, Ferrari, Porsche og Lamborghini. Bílasalan er 15 hæða og rúmar 60 bíla og eigendur hennar segja að þarna fari „heimsins stærsti bílasjálfsali“. Þeir sem vilja virða fyrir sér þá bíla sem bílasalan er að selja hverju sinni þurfa aðeins að velja númer bílsins sem berja á augum á snertiskjá og hann birtist á einni til tveimur mínútum. Eigandi bílasölunnar, sem fékk nafnið Autobahn Motors, sagði að ekki einungis hafi bílasalan þurft að rúma marga bíla á litlu rými og því byggð á hæðina, heldur var einnig meiningin að vera frumlegur og uppfinningasamur við smíði hennar. Það virðist hafa tekist í þessu tilfelli, því hún hefur nú þegar vakið mikla athygli þó engum sögum fari af sölunni hingað til. Meðfylgjandi myndskeið sýnir best virkni bílasölunnar óvenjulegu.Fremur áberandi í húsaröðinni.Í Singapore finnast væntanlega margir kaupendur af bílum eins og þarna eru seldir.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent