Stórveldin tvö í hættu á að skipta ekki lengur máli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. maí 2017 06:00 Danny Welbeck stráði salti í sár síns gamla félags í gær. vísir/getty
Arsenal vann afar góðan sigur á liði Manchester United í gær. Ólíklegt er þó að sigurinn hafi afgerandi áhrif á niðurstöðu tímabilsins enda nær útilokað að þessi lið náði að komast upp í hið eftirsótta fjórða sæti deildarinnar. Þessi sigursælustu félög í sögu ensku úrvalsdeildarinnar virðast vera langt frá því að geta gert alvöru atlögu að titlinum og spurningin er hvort þau geti orðið föst í hjólförum þess að þurfa alltaf að horfa upp á önnur lið næla í titilinn. Saga enskrar knattspyrnu er vörðuð liðum sem hafa náð hæstu hæðum en fallið úr sessi. Það fylgir sögunni að stórveldi rísi, falli og hverfi en ólíklegt að þau örlög bíði þessara félaga. Fjármunirnir og frægðin sem fylgir þessum félögum gerir það að verkum að þau verða alltaf í efri hluta deildarinnar, nema eitthvað mikið komi fyrir. Það sem stuðningsmenn þessara félaga ættu að hafa áhyggjur af er að þessi lið hljóti sömu örlög og Liverpool hefur þurft að þola síðustu áratugi. Að vera alltaf í grennd við toppinn, nálægt titilbaráttunni, án þess þó að eiga raunverulega möguleika á því að ná í þann stóra, að hætta að skipta máli. Þetta er það sem stuðningsmenn Arsenal hafa þurft að þola síðasta áratug. Þetta er einnig nýr raunveruleiki stuðningsmanna United undanfarin ár.Mourinho ekki fenginn til United til að vinna Evrópudeildina Stuðningsmenn Manchester United geta eflaust huggað sig við að liðið hefur nú þegar nælt sér í deildarbikarinn og er í góðri stöðu til þess að vinna Evrópudeildina. Tveir titlar á einu tímabili getur seint talist slæmur árangur en stuðningsmenn United einblína bara á eitt. Þeir gera kröfu um það að deildartitillinn skili sér heim á ný í 21. Skipti. United virðist hins vegar vera langt frá því að geta náð í hann, 16 stigum frá toppliði Chelsea. Ef til vill líta menn til þess að Mourinho er á sínu fyrsta tímabili með United og er aðeins að hefja uppbygginguna. Að sama skapi má benda á fyrsta tímabili Louis van Gaal, þar sem hann náði að koma liðinu aftur í Meistaradeildina. Ákveðin bjartsýni ríkti eftir það tímabil en óhætt er að segja að Van Gaal hafi ekki tekist að endurlífga stórveldisdrauma Manchester United. Saga Mourinho bendir einnig til þess að hann er ekki langlífur hjá þeim félögum sem hann stýrir. Vinni United Evrópudeildartitilinn getur Mourinho sjálfsagt vel við unað en hann var ekki ráðinn til United til þess að vinna þann titil, hann var heldur ekki ráðinn til að ná fimmta sætinu. Tapið í gær sýndi hvað liðið er langt á eftir hinum liðunum í toppbaráttunni. Liðið hefur til að mynda ekki skorað mark á útivelli gegn liðunum í efstu sex sætunum. Mourinho hefur afsakanirnar á þessu tímabili, en þær munu ekki gilda á því næsta.Sigurinn gerir lítið fyrir Wenger Arséne Wenger, stjóri Arsenal, virðist þó alveg vera á þrotum með sínar afsakanir. Stuðningsmenn félagsins virðast flestir hverjir vera orðnir langþreyttir á honum og getuleysi undanfarinna ára. Segja má að orð Mourinho, í aðdraganda leiksins, segi allt sem segja þarf um stöðu Wenger sem þjálfara Arsenal. „Sannleikurinn er sá að ég vona að Wenger haldi starfi sínu hjá Arsenal,“ sagði Mourinho en þeir félagar hafa eldað saman grátt silfur í gegnum tíðina. Þessi von Mourinho bendir eindregið til þess að hann telji Wenger ekki vera ógn í deildinni og miðað við gengi Arsenal að undanförnu er það ekki skrýtið. Liðinu hefur gengið afar illa og það virðist vera eins og leikmennirnir trúi ekki lengur á verkefnið. Það er yfirleitt síðasta hálmstrá knattspyrnustjóra. Þrátt fyrir allt sem að Wenger hefur gert fyrir Arsenal er líklega tíma fyrir hann að stíga til hliðar. Sigurinn í gær breytir litlu um enda afar ólíklegt að liðið spili í Meistaradeildinni að ári sem hefur verið helsta réttlætingin fyrir þaulsætni Wenger undanfarin ár. Staðan er einfaldlega þannig að vilji Arsenal ekki hljóta sömu örlög og Liverpool, þarf Wenger að fara. Hann getur gert það með reisn, takist liðinu að sigra ensku bikarkeppnina.
Enski boltinn Mest lesið Íþróttamaður ársins missti meðvitund á sjúkrahúsi Sport Littler gerir andlitið sitt að skráðu vörumerki Sport Real Madrid skoðaði vitlaust hné hjá Mbappé og gerði illt verra Fótbolti Tvö mörk dæmd af Chelsea í Meistaradeildartapi á móti Arsenal Fótbolti Eitthvað hörmulegt þurfi að eiga sér stað svo McGregor berjist ekki í júlí Sport KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Íslenski boltinn Sveindís Jane valin besti leikmaður vikunnar Fótbolti Ancelotti vill að Brasilía spili eins og á „kjötkveðjuhátíð“ Fótbolti Of mikill snjór til að halda skíðamót í Hlíðarfjalli Sport Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Handbolti Fleiri fréttir Pochettino segist sakna enska boltans Salah yfirgefur Liverpool eftir tímabilið PSG vill auðvelda sér lífið fyrir Liverpool-leikinn Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Gordon: „Sunderland ekkert sérstaklega góðir miðað við Newcastle“ „Þeir Pétur Jóhann eru tengdir við sama dýrið en annar á mjög neikvæðan hátt“ Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Sjötti leikmaður Arsenal missir af landsleikjum í mars „Arteta skuldar Kepa ekki neitt heldur stuðningsmönnum Arsenal“ Messan: Vill að Solskjær taki við Spurs Sjáðu Brobbey brjóta hjörtu, Watkins svara fyrir sig og Spurs steinliggja Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Sjáðu afmælisstrákinn tryggja titilinn og tvöfalt klúður Kepa Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Sjá meira