Leikjavísir

Seven keppa í Counter-Strike í Kaupmannahöfn

Samúel Karl Ólason skrifar
Strákarnir í Seven.
Strákarnir í Seven. Vísir/Stefán
Íslenska Counter-Strike Go liðið Seven keppir nú á mótinu Copenhagen Games, sem mun standa yfir yfir páskana. 80 lið er skráð til leiks í CSGO á mótinu sem mun standa yfir í dag og á morgun.

Þeir Bergur Jóhannsson, Birgir Ágústsson, Brynjar Jóhannsson, Hafþór Örn Pétursson og Stefán Dagbjartsson skipa clanið. Seven var upprunalega stofnað árið 2004 og spiluðu meðlimir þess Counter-Strike 1.6. Þeir Birgir og Brynjar endurvöktu clanið nú nýverið og að þessu sinni spila þeir CSGO.

Sjá einnig: Setja stefnuna á atvinnumennsku

Hægt er að skoða dagskrá mótsins hér. Henni seinkaði þó verulega í morgun vegna tæknilegra vandræða.

Í hverri umferð eru tvö lið sem keppa á stóra sviðinu og er leikurinn sendur út í beinni á Twitch. Þá útsendingu má sjá hér að neðan.

Seven er í riðli með Toppen e-sport 1 frá Noregi, Feenix frá Svíþjóð og Presidentee frá Danmörku.

Watch live video from CopenhagenGamesCS on www.twitch.tv





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.