FH-ingar björguðu stigi undir lokin á móti botnliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2017 21:19 Jóhann Birgir Ingvarsson. Vísir/Anton
Botnliðið Framara var nálægt því að taka öll stigin með sér úr Kaplakrika í kvöld þegar liðið mætti FH í 23. umferð Olís-deild karla í handbolta. Heimamenn í FH tryggðu sér 27-27 jafntefli með því að vinna lokakafla leiksins 6-2. Framarar voru 25-21 yfir þegar rúmar sex mínútur voru eftir. Jóhann Birgir Ingvarsson skoraði jöfnunarmark FH-inga en Framarar fengu lokasókn leiksins og Arnar Birkir Hálfdánsson var nálægt því að tryggja Safamýrarliðinu sigurinn. FH-ingar voru skrefinu á undan allan fyrri hálfleikinn og 13-12 yfir í hálfleik en frábær seinni hálfleikur kom Framliðinu í mjög góða stöðu. Fram var fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar en FH-ingar í öðru sæti. Það munaði níu sætum og þrettán stigum á liðunum í töflunni en Framarar létu það ekki stoppa sig í þessum leik. FH-ingar hafa spilað frábærlega eftir HM-fríið og voru farnir að gera sig líklega til að berjast við Hauka um deildarmeistaratitilinn. FH-liðið tapaði síðasta leik sínum en náði að bjarga öðru stiginu í kvöld. Arnar Birkir Hálfdánsson átti mjög góðan leik fyrir Fram og skoraði níu mörk en Andri Þór Helgason var með fimm mörk. Óðinn Þór Ríkharðsson, Jóhann Birgir Ingvarsson og Einar Rafn Eiðsson skoruðu öll fimm mörk fyrir FH í leiknum.
Olís-deild karla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira