Renault Captur í enn sportlegri og vandaðri útfærslu Finnur Thorlacius skrifar 8. mars 2017 13:45 Andlitlslyftur Renault Captur.
Á bílasýningunni í Genf sem nú stendur yfir kynnir Renault uppfærðan og enn sportlegri Captur. Nýtt útlit, einkum á framenda, er sportlegra og ágengara en í fyrri gerð og nú býður Renault kaupendum upp á 30 mismunandi samsetningar í litavali ásamt sex mismunandi litasamsetningum í farþegarýminu. Captur er nú hægt að fá með LED-framljósum (Full-LED Pure Vision) auk þess sem framstuðarinn er með C-laga LED-dagljósum. Útlitslega líkist Captur verulega stóru bræðrum sínum, Kadjar og Koleos, enda stefna Renault að fjórhjóladrifnir sportjeppar fyrirtækisins séu byggðir á sömu heildarlínu. Yfirmaður hönnunar á uppfærðum Captur, Mario Polla, segir að aukin gæði í efnisvali í farþegarýminu ásamt vönduðum frágangi einkenni mjög nýjan Captur enda hafi það verið eitt helsta markmiðið auk þess sem bíllinn sé hlaðið tækninýjungum í samræmi við nútímaþarfir kaupenda. Polla segir að mjög margir eigendur Captur hafi áður verið á stærri og dýrari bílum en hafi viljað fara yfir á minni og ódýrari bíl með fjölbreyttari notkunarmöguleika án þess að fórna þeim þægindum sem þeir höfðu vanist. Nýjum Captur er ætlað að uppfylla þessar óskir enn betur en áður.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent