Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu: 22. desember
Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.
Gáttaþefur kom til byggða í nótt og af því tilefni ákveða þau Hurðaskellir og Skjóða að föndra einmitt hann. Þau notast við rafmagnskerti en loginn á kertinu fær að vera ógnarlangt nefið á jólasveininum þefnæma. Þau föndra að vísu líka snjókarl og Skjóða gefur honum flott eyrnaskjól.
Frekari upplýsingar má finna á jolasveinar.is og á Facebook-síðu jólasveinanna.
Tengdar fréttir

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 18. desember
Hurðaskellir er alveg dauðþreyttur enda er hann búinn að ferðast út um allt land í nótt til að lauma gjöfum í litla skó. Hann er því ennþá sofandi þegar Skjóða ætlar að byrja þáttinn þeirra svo hún ákveður að koma bróður sínum á óvart og elda fyrir hann morgunmat. Það eru jólapönnukökur í matinn í dag og Skjóða ætlar að kenna ykkur að baka þær. Þetta er nú aldeilis flott hjá henni.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 17. desember
Það er bara vika til jóla og í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að föndra jólatré úr íspinnaspítum. Skjóða tekur að sér að háma í sig ísinn svo hægt sé að nota spíturnar. Við mælum alls ekki með því að borða svona mikinn ís í einu en það getur verið gaman að safna saman íspinnaspítum því þær er hægt að nota við alls konar föndur.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu: 20. desember
Í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að kenna ykkur að gera snjókarla og jólasveinagrímur og þá getið þið leikið snjókarla og jólasveina.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu: 19. desember
Hverju haldið þið að Hurðaskellir og Skjóða hafi fundið upp á núna? Þau ætla að föndra jólastjörnu úr þvottaklemmum. Bara svona venjulegum þvottaklemmum sem maður notar til að hengja upp þvottinn á miðvikudagsmorgnum.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu: 21. desember
Hurðaskellir fær mikilvægt símtal og þarf nauðsynlega að hlaupa í annað verkefni. Sem betur fer er hún Skjóða tilbúin með skemmtilegt föndur sem hún kennir okkur á meðan hann er í burtu.