Meðalþyngdin 12 pund úr Fnjóská Karl Lúðvíksson skrifar 20. júní 2016 16:20 Meðalþyngdin í Fnjóská er 12 pund það sem af er sumri. Vísir / Stangveiðifélagið Flúðir
Fnjóská er ein af skemmtilegri ám að veiða enda er hún krefjandi og hröð með von á stórum fiski. Samkvæmt fréttum frá leigutakanum er hrikalega mikið vatn í ánni og líklega er hún fimmföld miðað við venjulegt ágústvatn sem gerir hana ansi erfiða á mörgum stöðum. Hún er engu að síður veiðanleg en aðeins tvær stangir eru í gangi þessa dagana. Það verður ekki kvartað yfir veiðinni þó vatnið sé mikið en alls eru komnir 24 laxar á land frá opnun sem er mjög gott en það sem vekur þó athygli er meðalþyngdin en hún er 6 kíló eða rétt yfir 12 pundum. Það er einn "smálax" komin á land en það mun vera minnsti laxinn hingað til sem vigtaði 3.2 kíló en það þykir ekkert smátt t.d. í ánum á vesturlandi í meðalári. Það má skoða tölfræðina í stafrænni veiðibók hér. Meðalveiði áranna 1969 til 2008 er 261 lax. Minnst var veiðin 1995 en þá veiddust aðeins 60 laxar. Árið 1996 veiddust 91 laxar og 1983 árið 98 laxar. Mesta veiði aftur á móti, og það eru mun skemmtilegri tölur að lesa, var 1992 en þá veiddust 555 laxar. 1978 veiddust 554 laxar og 1979 veiddust 411 laxar og einnig veiddust 411 laxar 1993. Metveiði var í Fnjóská árið 2010 þegar 1054 laxar náðust á land.
Mest lesið Skutulsveiðar á eldislaxi eins og brandari Veiði Sjaldan veiðst jafn margir stórlaxar í Laxá Veiði Kýs að hnýta flugur með konum Veiði Næst besta opnun sumarsins er í Stóru Laxá IV Veiði Gamalt deilumál í deiglunni Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Gunnar Bender stendur Veiðivaktina enn eitt sumarið Veiði Ekki gleyma hinum "krakkavænu" ánum! Veiði Nýr 10 ára samningur um Laxá í Dölum Veiði Flott opnun í Affallinu og Þverá í Fljótshlíð Veiði