Stóraukin jepplingasala á ábyrgð kvenfólks Finnur Thorlacius skrifar 1. júní 2016 09:30 Mazda CX-5 er einn þeirra jepplinga sem vinsæll er á meðal kvenna.
Jepplingar seljast nú eins og heitar lummur um allan heim og ekki síst í Bandaríkjunum. Ein ástæða þess er að konur eru afar hrifnar af þessari gerð bíla. Konur virðast í seinni tíð hafa meira og meira að segja um hvaða bílar eru keyptir auk þess sem einstæðar konur velja sér margar jepplinga nú á tímum. Frá árinu 2010 til 2015 hefur vöxtur í sölu jepplinga í Bandaríkjunum til kvenna aukist um 34% en um 22% til karla. Ef aðeins eru skoðaðir lúxusjepplingar sem kvenfólk kaupir hefur vöxturinn á þessum 5 árum numið 177%. Það vekur einnig athygli að 40% þessara kvenkaupenda eru ógiftar. Ógift kvenfólk hefur sífellt hærri tekjur og velur sér ekki endilega lengur ódýrustu fólkbílana og hefur í síauknu mæli valið sér jepplinga, ekki síst til að sitja hátt í bílunum og þurfa ekki að setjast niður í þá. Auk þess meta þær mikils gott farangursrými þeirra. Rannsóknir sýna að tveir þriðju af kaupendum bíla meðal kvenna segja að val á bílunum hafa einvörðungu verið þeirra ákvörðun. Þær virðast einnig meta mikils lága eyðsla þessara bíla og þær kaupa treglega stóra jeppa sem eyða miklu. Fyrir vikið hafa jepplingar að stóru leiti leyst af hólmi fólksbíla. Bílaframleiðendur eru í auknum mæli að höfða til kvenna í framleiðslu sinni og auglýsingum. Kannanir sýna einnig að kvenmenn eru ákveðnir kaupendur og 60% þeirra sem koma í söluumboð bíla og fara þaðan tómhentar koma ekki aftur í það söluumboð. Því sé mjög mikilvægt fyrir bílaumboðin að taka þeim vel, auk þess sem kvenfólk er líklegra til að segja vinum sínum frá góðum eða slæmum upplifunum, en gerist meðal karlmanna.
Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent