Leikjavísir

EVE Fanfest er hafið

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Fanfest 2014.
Frá Fanfest 2014. Vísir/Rósa
EVE Fanfest hátíð og ráðstefna tölvuleikjaframleiðandans CCP hófst nú í morgun. Þetta er í tólfta sinn sem Fanfest er haldið og fer hún fram í Hörpu. CCP mun kynna nýja leiki sína iog verkefni á sviði sýndarveruleika á hátíðinni og búist er við um 1.500 erlendum gestum og blaðamönnum. Allt í allt er búist við að um 3.000 manns sæki hátíðina.

EVE Fanfest í ár samanstendur af 87 dagskrárliðum og má sjá dagskránna hér. Hægt er að horfa á beina útsendingu frá Fanfest hér að neðan og á Twitch. Dagskrá útsendingarinnar má sjá hér. Samkvæmt tilkynningu frá CCP horfa tugir þúsunda á útsendinguna á ári hverju.

„EVE Fanfest er nú haldin tólfta sinn og hefur stækkað mikið síðan hún var fyrst haldin árið 2004, ári eftir útgáfu leiksins EVE Online, á efri hæð Kaffi Sólon. Áskrifendur leiksins skipta í dag hundruðum þúsunda og eru eins og áður sagði stærstur hluti hátíðargesta Fanfest.  Auk fyrirlestra, pallborðsumræðna, umræðufunda, leikjamóta og prufanir á nýjum leikjum og verkefnum verður sett upp sérstök EVE verslun á 2. hæð Hörpu þar sem kaupa má varning tengdum leikjum CCP, m.a. bækur og teiknimyndasögur.  Gestir munu jafnramt geta fengið sér tattú með merkjum þjóða og fylkinga í EVE Online yfir hátíðina, látið mála sig í takt við þjóðarbrot leiksins, farið í EVEokí karókí, tekið þátt í uppboði með munum sem tengjast leiknum til stuðnings góðu málefni og fleira,“ segir í tilkynningunni.

EVE Fanfest lýkur á laugardagskvöldið með tónleikum í Hörpu.

Watch live video from CCP on www.twitch.tv





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.