Liverpool er miklu sigursælla í Evrópu en United en gengur illa á móti enskum liðum Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. mars 2016 12:30 Louis van Gaal og Jürgen Klopp stýra United og Liverpool í fyrstu Evrópuviðureign liðanna. vísir/getty
Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United mætast í fyrsta sinn í Evrópukeppni í kvöld þegar þau takast á í fyrri viðureign sinni í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Langt er síðan bæði lið fögnuðu sigri í Evrópukeppni. Liverpool vann síðast Meistaradeildina árið 2005 en Manchester United vann hana 2008. United fór aftur í úrslitaleikinn 2009 og 2011 en tapaði bæði skiptin fyrir Barcelona. Liverpool er miklu sigursælla í Evrópu en Manchester United. Það hefur unnið samtals ellefu Evróputitla; meistaradeildina fimm sinnum, evrópukeppni félagsliða þrisvar sinnum og stórbikar Evrópu í þrígang. United hefur unnið Meistaradeildina þrisvar sinnum, Evrópukeppni bikarhafa einu sinni og stórbikarinn einu sinni. Þrátt fyrir að vera með mun ríkari sögu í Evrópu er gengi Liverpool gegn enskum liðum í Evrópukeppnum eitthvað fyrir stuðningsmenn þess að hafa áhyggjur af. Í 16 leikjum á móti enskum liðum í Evrópu hefur Liverpool aðeins unnið fjóra, gert sjö jafntefli og tapað fimm. Markatalan er 17-19 en þetta gerir sigurhlutfall upp á 25 prósent. Það hjálpar ekki Liverpool að þrátt fyrir öll vandræði Louis van Gaal á Old Trafford er hann búinn að vinna alla fjóra leiki sína gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni síðan hann tók við starfinu. Leikur Liverpool og Manchester United verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD í kvöld klukkan 20.00.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Fleiri fréttir „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Sjá meira