Þjálfari Gróttu: Pressan er öll á Val Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar 26. febrúar 2016 21:40 Gunnar segir sínum mönnum til í kvöld. vísir/ernir
Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, var skiljanlega sáttur með sigurinn á Stjörnunni í kvöld og sætið í úrslitaleik bikarkeppninnar. "Þetta var hörkuleikur allan tímann," sagði Gunnar eftir leik. "Varnarleikurinn var ekkert spes í fyrri hálfleik og það tók okkur tíma að hrista þá af okkur sem er ekkert skrítið þar sem þeir eru með hörkulið. Við þurftum að hafa virkilega mikið fyrir þessum sigri," bætti Gunnar við. Hann hrósaði Stjörnuliðinu, sem situr á toppnum í 1. deildinni, fyrir sína frammistöðu í kvöld. "Ég hamraði á því alla vikuna að við gætum ekki leyft okkur neina værukærð. Og við sáum það í dag, við þurftum að hafa mikið fyrir sigrinum," sagði Gunnar sem var að vonum sáttur með innkomu Lárusar Gunnarssonar sem varði helming þeirra skota sem hann fékk á sig eftir að hann kom í markið undir lok fyrri hálfleiks. "Lárusi hefur farið gríðarlega mikið fram í vetur, þótt hann hafi kannski staðið aðeins í skugga Lárusar Helga (Ólafssonar) sem kom slappur í leikinn í dag." Grótta mætir Val í úrslitaleiknum á morgun en ekki er langt síðan þessi sömu lið áttust við í Olís-deildinni. Þá hafði Grótta betur, 23-24. "Við þekkjum Val ágætlega og erum að fara að mæta liði sem er miklu sterkara á pappírnum en við. En litlu liðin geta strítt þeim stóru eins og við sýndum um daginn á Hlíðarenda. Pressan verður öll á þeim," sagði Gunnar að endingu.
Olís-deild karla Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Amad bjargaði stigi fyrir United Enski boltinn Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Enski boltinn Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Enski boltinn Fleiri fréttir KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Sjá meira