Keppnin verður einstaklega glæsileg að þessu sinni og verður gestum boðið upp á fjögurra rétta hátíðarmatseðil ásamt sérvöldum vínum sem kokkalandsliðið reiðir fram.
Fimm keppendur hafa verið valdir áfram úr undanúrslitum til þess að keppa sín á milli þetta kvöld og verður einn þeirra krýndur Kokkur ársins.
Það verður Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra sem veitir viðurkenninguna en að sögn Þráins Freys Vigfússonar, eins aðstandenda keppninnar þykir það mikill heiður að hljóta þennan titil.

Hann bætir við að kvöldið verði hið glæsilegasta og mikið sjónarspil fyrir gesti þar sem þeir geti fylgst með keppendum með eigin augum.
Sigurvegari kvöldsins sækir svo keppnina Nordic chef of the year heim en hún verður haldin í Danmörku í byrjun mars.

Hann var sjálfur valinn Kokkur ársins árið 2007 og hélt út í Bocuse d´Or keppnina í Lyon 2011 þar sem hann náði góðum árangri.
„Það að vera valin kokkur ársins á sínum tíma veitti mér mörg tækifæri og reynslu sem hefur nýst mér vel í faginu og lífinu.“
Sælkerar sem vilja tryggja sér miða á viðburðinn er bent á að senda tölvupóst á chef@chef.is