Hátíðin er haldin í Vestur-Englandi og þar flykkjast að stærstu tónlistarmenn heimsins til þess að koma fram og þekktustu stjörnur Bretlands mæta til þess að skemmta sér.

Þetta er hátíðin þar sem óhætt er að taka áhættu í klæðaburði enda komast allir upp með það, en í grunninn eru margir að vinna með það sem hefur verið lengi í tísku í tísku eins og til dæmis blómahárbönd, gallastuttbuxur og kögurvesti og kjóla.
Það voru líka margir sem fóru nýjar leiðir og prófuðu alveg nýja hluti. Helst ber að nefna níðþrönga samfestinga, mynstraðar skyrtur og silkikjóla.
Flestir voru í Hunter-stígvélunum eða Dr. Martens hermannaskóm. Speglasólgleraugu og mittistöskur voru eins og rauður þráður í gegnum hátíðina ásamt derhúfum.

Skipuleggjendur Glastonbury hafa sætt mikilli gagnrýni þetta árið vegna þess að þeir fengu rapparann Kanye West til þess að vera með aðaltónleikana.
Aðdáendur hátíðarinnar voru afar ósáttir þar sem Glastonbury hefur alltaf verið rokkhátíð.
Kanye náði heldur betur að þagga niður í gagnrýnendum sínum og hélt eina flottustu tónleika sem sögur fara af.

Foo Fighters áttu að vera eitt af aðalnúmerunum þetta árið ásamt Kanye, en söngvari sveitarinnar, Dave Grohl, fótbrotnaði fyrir stuttu og náði því ekki að koma fram.
Florence and the Machines komu í þeirra stað.

Talið er að um 150.000 gestir hafi verið á svæðinu en tónleikunum er dreift á mörg svið svo hægt sé að hafa betri stjórn á mannfjöldanum.
Athygli vakti að Dalai Lama mætti á svæðið og ávarpaði gesti frá aðalsviðinu ásamt söngkonunni Patti Smith. Tilefnið var 80 ára afmæli hans í næstu viku.
Saman kynntu Dalai Lama og Patti herrann Lionel Richie upp á svið.
