Innlent

Landsmenn bíða óþolinmóðir eftir að vorið gangi í garð: Óvægnar lægðir leika okkur grátt

Færð fyrir gangandi vegfarendur hefur ekki verið með besta móti síðustu vikur.
Færð fyrir gangandi vegfarendur hefur ekki verið með besta móti síðustu vikur. Fréttablaðið/Vilhelm
Veðurguðirnir hafa svo sannarlega sýnt landsmönnum mátt sinn og megin síðustu vikur og mánuði. Veðrið hefur haft það í för með sér að samgöngur, bæði í lofti og á jörðu niðri, hafa farið úr skorðum.

Veðurstofan hefur nú einnig gefið út viðvörun að vegna mikilla rigninga í bland við hvassviðri og hátt hitastig er líklegt að leysingar skapi hættu á vatnsflóðum, votum snjóflóðum, krapaflóðum og skriðuföllum víða um landið.

Óvissustigi vegna snjóflóða hefur einnig verið lýst yfir á Vestfjörðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×