Tískuviðburður ársins, Reykjavík Fashion Festival, hefst formlega í kvöld. „Opnunarpartíið verður haldið á Ský Bar and Lounge í kvöld klukkan 21.00 og þangað er öllum hátíðargestum boðið að koma og fagna með okkur, en Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra mun opna hátíðina,“ segir Eyjólfur Gíslason, fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar.
Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða á hátíðina, hátíðarpassar fyrir helgina eru uppseldir og örfáir miðar voru eftir á stakar sýningar þegar blaðið fór í prentun. Sýningarnar byrja svo á föstudagskvöld og verður húsið opnað klukkan hálf átta.
„Það verður dálítið hlé á milli sýninganna, þar sem við vildum gera meira úr hátíðinni. Þarna geta gestir komið saman, sýnt sig og séð aðra,“ segir Eyjólfur. Á föstudag sýna Sigga Maija og Jör. Húsið verður opnað klukkan 14.30 á laugardag en þá sýna Another Creation, Scintilla, MAGNEA og EYLAND. Nánari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðunni rff.is.
