Nostalgía frá 90s Björn Teitsson skrifar 19. janúar 2015 10:30
Tónlist In the Eye of the Storm Mono Town Record Records In the Eye of the Storm er fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Mono Town sem hefur á undanförnum árum spilað nokkuð víða og fengið fína áhlustun í útvarpi. Sveitin er skipuð þremur mönnum á fertugsaldri sem fá þó til liðs við sig talsvert af aðstoðarfólki við gerð skífunnar. Þar á meðal er hinn margverðlaunaði kammerkór Hallgrímskirkju, hvorki meira né minna. Mikill metnaður einkennir verkið og greinilegt er að mikil vinna hefur verið lögð í þennan frumburð. Flutningurinn sjálfur er virkilega fagmannlegur og upptökustjórn til fyrirmyndar – svo mikið til fyrirmyndar að In the Eye of the Storm dansar á línunni að vera „óverpródúseruð“. Tónlistin sem hljómsveitin flytur og aðhyllist greinilega er bresk indírokktónlist sem var vinsælust á 10. áratug síðustu aldar, sennilega um það leyti sem hljómsveitarmeðlimir voru að vaxa úr grasi. Þetta eru alls ekki frumlegustu tónsmíðar í sögu mannkyns og gæti allt eins verið plata með sveit á borð við Manic Street Preachers, Stereophonics eða ef til vill hinni vanmetnu Starsailor. Rödd Bjarka Sigurðssonar, söngvara og helstu driffjaðrar sveitarinnar, sver sig í ætt breskra rokksöngvara þess tíma – einhvers konar Liam Gallagher Íslands… og er það alls ekki illa meint.Bjarki Sigurðsson og bræðurnir Daði og Börkur Birgissynir skipa hljómsveitina Mono Town. Vísir/VilhelmBestu lög plötunnar eru Peacemaker, Two Bullets og Yesterday‘s Feeling. Þau eru öll einstaklega melódísk (eins og platan reyndar öll) og sérstaklega skemmtilegt að heyra ELO-strengjaútsetningarnar í síðastnefnda laginu, sem er reyndar það lag þar sem Bjarki nær sér helst á strik með brothættri falsetturödd í viðlaginu – en það viðlag er bara drullugott. Værum við stödd á einhverjum skítapöbb í Sheffield árið 1994 þá væri Alan McGhee búinn að „sign-a“ þessa gaura á stundinni! Fyrir þá sem vilja fá nett nostalgíukast, eða einfaldlega fíla breska indítónlist frá síðustu öld, þá er In the Eye of the Storm frábær skífa. Textasmíðarnar mættu þó innihalda aðeins minna af „la-la-la“ (án djóks, fimm lög sem innihalda þann frasa) en annars eru flottir taktar og flottir kaflar. Sörfgítarvæbið í No More (Shall I Fear You) er til dæmis geggjað, gæti átt heima í kvikmynd eftir Tarantino. Því miður dettur skífan aðeins niður undir lokin, þar sem er að finna sístu lögin Far Away og Can Deny. Það verður þó að teljast líklegt að þau lög hafi verið betri – þau mættu vera aðeins hrárri ef eitthvað er.Niðurstaða: Þessi plata hefði náð á topp enska vinsældarlistans árið 1995. Bókað mál. Nokkrir slagarar og fínasti gripur sem dettur ögn niður undir lokin.
Gagnrýni Menning Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Fleiri fréttir Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira