Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum. Hér er uppskrift að snittum sem henta vel um áramót.
Crostini brauðsnittur
Ca. 20 stk
1 stk. stórt baquette brauð(bakað)
Góð extra virgin ólífuolía
sjávarsalt
svartur pipar úr kvörn
Skerið brauðið í ca. 1 cm þykkar sneiðar og raðið á bökunarplötu. Penslið brauðið með ólífuolíu og kryddið það með salti og pipar. Setjið brauðið inn í 180 gráðu heitan ofninn í 6-7 mín. Takið út úr ofninum og látið kólna.
-----
Hreindýrasnitta með piparrótardressingu cheddarosti og grænum eplum
Hreindýratartar
200 g hreindýrakjöt sinalaust (smátt skorið)
1 stk. fínt skorinn skallotlaukur
½ grænt epli (skrælt og skorið í litla teninga)
1 stk. sýrð smágúrka (fínt skorin)
1 msk. dill (fínt skorið)
20 stk. crostini brauðsnittur
íssalat
sjávarsalt
svartur pipar úr kvörn
Setjið allt hráefnið saman í skál og smakkið til með saltinu og piparnum. Setjið piparrótardressingu á brauðsnittuna og salatblað ofan á það. Ofan á salatblaðið er sett ca. 1 msk. af tartarnum, því næst smá sósa og 1 dilltopp í lokin.
Piparrótardressing
½ dós 18% sýrður rjómi
2 msk. majónes
1 msk. fínt rifinn fersk piparrót
1 msk. Worcestershire sósa
ferskur sítrónusafi
fínt salt
Setjið allt hráefnið saman í skál og blandið því vel saman smakkið til með sítrónusafanum og saltinu.
------
Steiktur humar á crostini með engferchilisultu
20 stk pillaðir humarhalar
ólífuolía
40 g smjör
20 stk. crostini brauðsnittur
klettasalat
sjávarsalt
Hitið pönnu með ólífuolíu og steikið humarinn í ca 2 min og snúið honum svo við og bætið smjörinu út á pönnuna. Ausið smjörinu yfir humarinn og steikið í 2 min í viðbót og kryddið með salti. Setjið humarinn á eldhúsrúllu og þerrið hann. Setjið klettasalatið á brauðsnittuna og svo humarinn ofan á það bætið, næst engiferchilisultunni ofan á og skerið svo í lokinn smá klettaslat fínt og bætið ofan á sultuna.
Engifer-chili sulta
500 g tómatar (gróft saxaðir)
4 stk. rauður chili (saxaðir fína strimlar)
3 stk. hvítlaukur (fínt saxaðir)
1 tsk. lemongrass paste
1 þumlungur engifer (fínt saxað)
50 ml rauðvínsedik
300 g hrásykur
1 stk. stjörnuanís
1 tsk. pektin (sultuhleypir)
Allt sett í pott og soðið þar til sultan fer að þykkna og setjið inn í ísskáp og látið kólna.
-----
Steikt andalifur með fennelsultu
1 stk. fennel
1/2 hvítur laukur
4 stk. apríkósur
1 stk. stjörnuanis
1 stk. kardimomma
2 stk. negulnaglar
150 g eplaedik
70 g hrásykur
Skerið fennelið og laukinn gróft niður og setjið í pott með öllu hinu hráefninu. Sjóðið saman í 30 mín eða þar til allt er orðið mjúkt undir tönn. Takið kryddin úr pottinum og setjið í skál og látið sultuna kólna.
Meðlæti á snittu
7 stk. andalifrar steikur
8 msk. hveiti
4 msk. granateplakjarnar
4 msk. pistasíur (ristaðar í 150° í 20 mín.)
1 lúka klettasalat
20 stk. brauðsnittur
1 msk. truffluolía
ólífuolía til steikingar
Hitið pönnu með ólífuolíu á, veltið andalifrinni upp úr hveitinu og setjið á pönnuna og steikið í ca. 2 mín á hvorri hlið. Setjið klettasalatið á snittuna og leggið svo andalifrina þar ofan á. Bætið því næst fennelsultunni ofan á.
Blandið saman granateplakjörnunum og pistasíunum og setjið ca. 1 msk. af truffluolíunni yfir og blandið öllu saman og setjið á toppinn á snittunni.

