Níski nasistinn Frosti Logason skrifar 18. desember 2015 09:18 Í mínum vinahóp finnast margir kynlegir kvistir. Einn vina minna þykir reyndar algerlega sér á báti. En hann datt ungur að árum í fjárhagslegan lukkupott og hefur af þeim sökum ekki unnið handtak síðan einhvern tímann snemma í upphafi þessarar aldar. Margir töldu ósanngjarnt að örlögin skyldu haga málum þannig því allt frá barnsaldri hefur maðurinn verið annálað hrekkjusvín og kvikindi sem ekkert gott má sjá án þess að gretta sig og frussa. Sumir segja hann jafnvel vera djöful í mannsmynd. Hann má þó eiga það að þrátt fyrir að hafa aldrei unnið sér inn krónu sjálfur, ber hann óttablandna virðingu fyrir peningum. Hann fylgist grannt með hverjum eyri sem hann eyðir og heldur ítarlegt bókhald yfir alla sína veltu. Á dagatali, sem hann fékk gefins frá viðskiptabanka sínum, hakar hann samviskusamlega við alla þá daga sem hann er undir áhrifum en þeir eru að meðaltali rúmlega þrjú hundruð á ári hverju. Það mættu margir taka sér þá reglusemi hans til fyrirmyndar. Þessi vinur minn þolir síðan illa hvers kyns bruðl og vill ekki sjá óþarfa fjáraustur í einhvern flottræfilshátt með klæðnað eða aðrar munaðarvörur. Jólin eru þess vegna einhver andstyggilegasti tími ársins fyrir honum og honum sortnar fyrir augum þegar hann leiðir hugann að öllu svona gjafastússi sem fylgir árstímanum. Þess vegna heldur hann sín jól einsamall yfir hrísgrjónapotti á Taílandi og unir sér vel. Það kostar víst nánast ekki neitt og það gleður minn mann. Ég er búinn að sigra lífið sagði hann síðast þegar ég heyrði í honum og bætti svo við að hann bæði ekki að heilsa neinum heima á Íslandi. Gleðileg jól. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frosti Logason Mest lesið 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun