Á eftir að ná langt Jónas Sen skrifar 5. desember 2015 12:00 Einleikur Baldvins Oddssonar trompetleikara á tónleikunum var magnaður.
Tónlist Sinfóníutónleikar Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti verk eftir Bach, Händel, Albinoni og Mozart. Einleikari: Baldvin Oddsson Stjórnandi: Matthew Halls Eldborg, Hörpu Fimmtudaginn 3. desember Hér í gamla daga skiptist fólk í andstæðar fylkingar eftir því hvort það fílaði klassíska tónlist eða ekki. Það var slegist um það á síðum dagblaðanna. Mörgum fannst ótækt hve mikið rými klassíkin fékk í Ríkisútvarpinu. Einn greinarhöfundar skammaðist yfir útsendingu sinfóníugargs. Hann talaði um Brandara-konsert eftir Jóhann Sebastían Bjakk. Bjakk var einmitt á dagskránni í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Nánar tiltekið sjötti Brandenborgarkonsertinn eftir Bach. Þar var leikið á sjö hljóðfæri: Tvær víólur, þrjú selló, sembal og bassa. Þetta var óvanaleg hljóðfærasamsetning. Segja má að það hafi vantað toppinn í hljóminn, þ.e. fiðlurnar. Fyrir bragðið fékk tónsmíðin á sig sérkennilegt yfirbragð. Flutningurinn var þó ekki alveg nógu góður. Sumir víólutónarnir voru dálítið ónákvæmir. Fyrir bragðið var ekki almennilegur fókus í túlkuninni. Heildarsvipurinn var losaralegur; sennilega hefði mátt æfa verkið meira. Sjálfsagt var konsertinn það erfiðasta á dagskránni. Bara sjö raddir gerðu tónlistina nakta. Minnstu misfellur heyrðust auðveldlega. Annað var mun betra. Hluti úr Vatnatónlist Händels hefði reyndar mátt vera tærari í málmblæstrinum. Almennt talað var hún nokkuð hrá, styrkleikajafnvægið hefði mátt vera nákvæmara. En Hátíðarsvíta úr sinfóníum Bachs í útsetningu stjórnandans, Matthew Halls, var prýðilega flutt. Hún var hátíðleg og fjörug í senn. Tæknilega séð var hún örugg, samspilið var akkúrat, hljómurinn breiður og fallegur. Það var þó fyrst og fremst tvennt sem gerði að verkum að tónleikarnir fá fjórar stjörnur. Annars vegar var það einleikarinn á trompet, hins vegar sinfónía eftir Mozart. Einleikarinn hét Baldvin Oddsson og var í aðalhlutverkinu í konsert í B-dúr op. 7 nr. 3 eftir Tomaso Albinoni. Hann er ungur að árum en spilaði eins og engill. Leikur hans var ótrúlega hreinn og fallega mótaður. Hann var fullkomlega áreynslulaus og vandaður. Hröð tónahlaup voru fumlaus og jöfn, trillur svo skýrar að maður dáðist að. Baldvin á eftir að ná langt á tónlistarbrautinni, það er alveg ljóst. En með fullri virðingu fyrir Albinoni, Händel og Bach, þá tók Mozart þá alla í nefið. Albinoni er vissulega minniháttar tónskáld, en Bach og Händel ekki. Samt komust þeir ekki með tærnar þar sem Mozart hafði hælana. Tónlist hans er svo alltumlykjandi og dásamleg, hún er margbrotnari og miklu meira lifandi. Snilldin er alger, fágunin óviðjafnanleg. Á efnisskránni var hin svonefnda Haffnersinfónía og hljómsveitin spilaði hana einkar glæsilega. Sagt hefur verið að Guð sé í smáatriðunum og hér voru smæstu blæbrigði afar fagurlega mótuð. Heildarsvipurinn var stórbrotinn og tignarlegur, en samt unaðslega gleðiþrunginn. Þetta var innblásinn flutningur.Niðurstaða: Haffnersinfónía Mozarts var snilld og einleikur Baldvins Oddssonar var magnaður.Hægt er að hlusta á tónleikana hér á vef RÚV til 11. febrúar.
Menning Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist HAM boða endalok alls Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira