Snæviþakin sýning Mitsubishi bíla Finnur Thorlacius skrifar 8. desember 2015 09:32 Mitsubishi L200 pallbíllinn var sýndur.
Veturinn stimplaði sig hressilega inn síðustu helgina í nóvember þegar stórsýning Mitsubishi var haldin hjá HEKLU á Laugaveginum. Verið var að kynna nýja kynslóð af L200, Outlander og tengiltvinnbílinn Outlander PHEV. Sportlegi pallbíllinn L200 er fullkomin blanda af þægindum, áreiðanleika og notagildi pallbílsins. Nýr L200 er ekki bara með útlitið á hreinu heldur er hann algjör vinnuþjarkur og var á dögunum valinn pallbíll ársins 2015 af Auto Express. Nýr Mitsubishi Outlander er hannaður fyrir íslenskar aðstæður og fjórhjóladrifið tryggir hámarksframmistöðu í krefjandi aðstæðum. Outlander PHEV gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni og var á dögunum valinn tengiltvinnbíll ársins í Skotlandi. Báðir eru þeir öryggið uppmálað með 5 stjörnu einkunn í árekstrarprófunum EuroNcap. Það var við hæfi að vetur konungur léti á sér kræla með kröftugri snjókomu á frumsýningunni en eins og þekkt er var snjókoman ein sú mesta í hartnær fjörtíu ár. „Það var jólalegt um að líta hjá okkur. Snjónum bókstaflega kyngdi niður en fólk lét veðrið ekkert á sig fá og við fengum marga góð gesti. Þetta var afar notalegt, við gæddum okkur á piparkökum og jólaöli og sýndum alla nýju bílana okkar. Dagurinn lukkaðist mjög vel og það festi sig enginn á leiðinni heim,“ segir Jón Vikar Jónsson, sölustjóri Mitsubishi.
Mest lesið Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent