Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.
Í dag er 8. desember og það þýðir að það eru bara 16 dagar til jóla!
Hurðaskellir og Skjóða halda áfram að föndra og í dag ætla þau að skapa heilt jólaland. Kíktu með okkur í heimsókn til þeirra.
Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.