Níföld sala Volvo XC90 í Bandaríkjunum Finnur Thorlacius skrifar 23. nóvember 2015 13:13 Volvo XC90 jeppinn mokselst nú í Bandaríkjunum.
Í síðasta mánuði var sala Volvo XC90 jeppans 861% meiri í Bandaríkjunum en í sama mánuði fyrra. Ástæða þess er náttúrulega að ný gerð jeppans er komin á markað og hefur honum verið tekið með kostum og bíllinn nú þegar margverðlaunaður. Þessi góða sala XC90 gerði það að verkum að sala Volvo í heildina í Bandaríkjunum jókst um 87% í október. Fyrstu 10 mánuði ársins hafa selst 56.366 Volvo bílar í Bandaríkjunum og stefnir Volvo að því að ná sem næst 70.000 bíla sölu þar í ár. Takmarkið á næsta ári er síðan 87.000 og 100.000 bílar árið 2017. Svo góðri sölu hefur Volvo ekki náð vestanhafs síðan 2007 og hafði sala Volvo bíla fallið mjög síðan þá, þar til nú að hún vex stórlega. Vöxturinn í ár nemur 13%. Volvo mun kynna marga nýja bíla fyrir Bandaríkjamönnum á næstunni og ætlar sér mikla hluti þarlendis á næstu árum. Volvo ætlar að kynna nýjan S90 bíl, flaggskip sitt í fólksbílaflokki, fyrst fyrir Bandaríkjamönnum í Detroit í janúar á næsta ári, en þar fer þá fram árleg bílasýning. Volvo áætlar að sá bíll muni seljast vel í Bandaríkjunum og því engin tilviljun að bíllinn verði fyrst sýndur þar.
Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent