Sér fram á að eignast úlpu í fyrsta sinn í mörg ár Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 27. nóvember 2015 07:00 Guðmundur er að vonum ánægður með samstarfið og segir það hafa verið viss tilbrigði að einblína á eina flík. Vísir/AntonBrink „
Þetta virkar hrikalega vel, ég sé fram á að ég muni eignast úlpu í fyrsta skipti í mörg ár. Hún er líka svo létt í vigt að hún er góð bara tíu mánuði ársins ef tekið er mið af veðrinu hér,“ segir fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson hress um úlpuna Jöræfi Prima sem er afrakstur hönnunarteymis JÖR og hönnunar- og framleiðsludeildar 66°Norður. Hugmyndin að samstarfinu kviknaði innan herbúða Jör fyrir rúmu einu og hálfu ári og þá var hafist handa við að kasta hugmyndum á milli. Mynd/MagnúsUnnar„Við vorum fyrst að spá í að gera línu en svo vorum við sammála um að gera frekar fókuserað samstarf.“ Útkoman varð Jöræfi Prima, útgáfa af húfukollunni sem hlýjað hefur fjölmörgum um höfuðið auk vatnshelds poka og segir Guðmundur að ekki sé útilokað að frekara samstarf verði á milli JÖR og fyrirtækisins ef afurðirnar mælist vel fyrir, hann sé þó ánægður núna með að hafa getað einbeitt sér að úlpunni. „Ég var líka bara sérlega ánægður með það eftir á að hyggja, það er náttúrulega bara sturluð vinna að gera svona tæknilegar flíkur, miklu fleiri hindranir,“ segir hann og bætir við að það hafi vissulega verið ákveðin tilbreyting í því að einblína á eina flík þar sem hann og teymið séu vanari því að hugsa í heilum fatalínum. „Við náttúrulega störfum þannig að við hugsum ekki í einni flík í einu þannig að það er gaman að fá að fókusera bara á eina í einu. Maður er alltaf að hugsa um hundrað í einu fyrir heila línu. Þannig að það var gaman að geta sökkt sér svona í þetta.“ Mynd/MagnúsUnnarGuðmundur segir að ekki sé loku fyrir það skotið að JÖR fari í samstarf við fleiri vörumerki, það sé í senn lærdómsríkt og skemmtilegt. „Það er hrikalega skemmtilegt og inspírerandi. Maður fær nýtt perspektíf og lærir alveg helling af því. Við höfum verið í samstarfi með Halla Jóns myndlistarmanni, það er náttúrulega allt öðruvísi og verður eflaust meira af því.“ Nafnið vekur óneitanlega athygli og er Guðmundur fljótur til svars þegar hann er spurður að því hvort það hafi legið beint við: „Það kom nú bara allt í einu, ég trúi eiginlega ekki að þetta hafi verið samþykkt. En það voru allir á því að þetta væri nafnið,“ segir hann hlæjandi og bætir við: „Þetta hljómar svona eins og einhver staður eða eyja, mitt á milli Jör og 66°Norður.“ Jöræfi kemur til þess að byrja með aðeins í takmörkuðu upplagi og verður samstarfið frumsýnt klukkan 17.00 í verslun 66°Norður í Bankastræti.
Tíska og hönnun Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Fleiri fréttir Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira