Sló í gegn með Swansea fyrir þremur árum en er nú á leiðinni í 4. deildina á Spáni Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. október 2015 11:30 Michu er á niðurleið. vísir/getty
Einn gleymdasti framherji Evrópuboltans, Spánverjinn Michu, er á leið í spænsku fjórðu deildina aðeins þremur árum eftir að hann sló í gegn á Englandi. Þessi öflugi framherji gekk í raðir Swansea frá Rayo Vallecano sumarið 2012 og sló í gegn undir stjórn Michaels Laudrups. Hann skoraði 18 mörk í 35 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og 22 mörk í öllum keppnum. Með Michu sem sinn besta mann vann Swansea deildabikarinn á fyrra tímabili kappans hjá velska liðinu. Spánverjinn var mikið meiddur leiktíðina eftir það og skoraði aðeins sex mörk í öllum keppnum og tók ekki þátt í nema 17 leikjum í úrvalsdeildinni. Garry Monk, sem tók við stjórnartaumunum hjá Swansea, vildi ekkert með Michu hafa og þráði að koma stórum launapakka hans frá félaginu. Rafael Benítez fékk hann að láni til Napoli á síðustu leiktíð þar sem hann var einnig mikið meiddur og spilaði ekki nema fimm leiki í heildina. Greint var frá því í sumar að Michu væri að íhuga að leggja skóna á hilluna 29 ára gamall, en nú segir spænska íþróttablaðið AS frá því að hann ætli að ganga í raðir Langreo í fjórðu deild Spánar. Michu hefur æft með liðinu, sem er í fimmta sæti deildarinnar, undanfarna mánuði. Bróðir hans, Hernan Perez, er framkvæmdastjóri Langreo. Swansea á enn eftir að gefa grænt ljós á félagaskiptin en velska liðið er enn með hann á samning og vill fá eitthvað fyrir hann. Búist er við að Michu verði ekki lengur en fram í janúar hjá Langreo og reyni þá að komast að hjá stærra liði eftir að hann kemst í gegnum meiðslin.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira