Haukar unnu þriðja leikinn í röð Kristinn Páll Teitsson skrifar 1. október 2015 21:18 Giedrius Morkunas var öflugur í markinu í kvöld að vana. Vísir/
Haukar unnu tveggja marka sigur á nýliðum Gróttu, 24-22, í 6. umferð Olís-deildar karla í kvöld en eftir að hafa lent sjö mörkum undir um tíma í seinni hálfleik tókst leikmönnum Gróttu að vinna sig aftur inn í leikinn. Leikmenn Gróttu höfðu fengið skell í síðustu tveimur leikjum gegn ÍBV og Val en þeim tókst að halda í við Haukaliðið í fyrri hálfleik og var staðan 11-12 í hálfleik, Haukum í vil. Gestirnir úr Hafnafirði virtust ætla að gera út um leikinn tíu mínútum fyrir leikslok þegar Haukar leiddu með sjö mörkum og fengu víti en markvarsla Lárusar Helga Ólafssonar virtist vekja leikmenn Gróttu til lífsins. Skyndilega tókst Gróttu að saxa á forskot Hauka og fór munurinn niður í tvö mörk þegar ein mínúta var til leiksloka en mark Heimis Óla Heimissonar gerði út um leikinn á lokamínútunni. Aron Dagur Pálsson var atkvæðamestur í liði Gróttu með 7 mörk en það tók liðið 18 mínútur að skora annað mark sitt í seinni hálfleik og reyndist það liðinu of mikið að ætla að vinna upp sjö marka forskot. Í liði Hauka var það Janus Daði Smárason sem var markahæstur með átta mörk, þar af tvö af vítalínunni.
Olís-deild karla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira