Enski boltinn

Moreno: Shaw kennir mér ekki um fótbrotið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hector Moreno.
Hector Moreno. vísir/getty
Luke Shaw, bakvörður Manchester United, kennir Hector Moreno, leikmanni PSV Eindhoven, ekki um að hafa fótbrotið sig í leik liðanna í Meistaradeildinni  á dögunum

Moreno tæklaði Shaw í leiknum með þeim afleiðingum að hann tvífótbrotnaði, en Englendingurinn ungi fór í tvær aðgerðir á hollenskum spítala áður en honum var flogið heim til Manchester.

Phillip Cocu, þjálfari PSV, og Moreno heimsóttu Shaw á sjúkrahúsið í síðustu viku.

„Það sem kom fyrir Shaw var óheppilegt. Ég var í áfalli. Það gladdi mig að geta talað við hann,“ segir Moreno í viðtali við Metronieuws.

„Það var rosalega erfitt að hitta hann til að byrja með, en hann var mjög vingjarnlegur við mig og kenndi mér ekki um atvikið.“

„Hann var búinn að sjá hvað gerðist og sagði að þetta væri bara hluti af fótboltanum. Það fékk mig til að brosa,“ segir Hector Moreno.


Tengdar fréttir

Luke Shaw fótbrotnaði í Eindhoven

Bakvörður Manchester United var tæklaður illa í vítateig PSV og verður ekki meira með á þessari leiktíð.

Luke Shaw: Ég kem sterkari til baka

Bakvörður Manchester United þakkaði fyrir stuðninginn á Twitter skömmu eftir að fótbrotna illa í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×