Fótbolti

Mourinho fór stigalaus frá gamla heimavellinum | Sjáðu mörkin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Portúgalska félagið Porto vann óvæntan 2-1 sigur á lærisveinum Jose Mourinho í Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld.

Það var mikið rætt um að Mourinho væri að snúa aftur til félagsins þar sem hann sló í gegn en hann stýrði Porto til sigurs í Meistaradeildinni árið 2004.

André André kom Porto yfir tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks en Willian tókst að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks.

Fyrirliða Porto, Maicon, tókst hinsvegar að tryggja portúgalska félaginu stigin þrjú með skallamarki í upphafi seinni hálfleiks en skalli hans kom eftir hornspyrnu.

Chelsea reyndi að færa sig framar á völlinn eftir það en án árangurs og fögnuðu leikmenn portúgalska félagsins því óvæntum sigri á ensku meisturunum. 

Sigurmark leiksins:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×