Í helgarblaði fréttablaðsins kom fram að leikurinn fengi fjórar stjörnur. Það voru mistök, en hann er vel fimm stjörnu virði.
Þó mætti segja að sögunni hafi verið fórnað fyrir frelsið, þar sem mun minni tíma er varið i söguna í Phantom Pain en öðrum Metal Gear leikjum. Þó geta leikmenn hlustað á upptökur og rifjað söguna upp sé sá vilji fyrir hendi. Þeir sem eru að koma nýir inn í seríunna ættu að taka sér tíma til þess. Þá myndi ekki skemma fyrir að róta aðeins í Wikiasíðu Metal Gear.

Þó leikurinn gangi mikið út á að læðast inn fyrir víglínur óvina, þá er það alls ekki eina leiðin til að leysa úr verkefnum leiksins. Öll svæði leiksins eru opin og hægt er að taka með sér mismunandi vopn og fylgdarfélaga í hvert sinn. Hvort sem það er hestur, hundur, vélmenni eða leyniskytta. Hver félagi hefur mismunandi hæfileika sem nýtast leikmönnum eftir því hvernig þeir spila leikinn.
Þar að auki gengur leikurinn út á að safna að sér málmum og eldsneyti til þess að byggja upp herstöð og meðfylgjandi her. Herinn er hægt að nota til að leysa ýmis verkefni. Í herstöðinni eru einnig þróuð ný vopn fyrir Big boss og gömul vopn eru uppfærð.
Auk þess að Big boss geti notað herinn til að fá meiri pening og málma og eldsneyti er hægt að nota hann til að koma í veg fyrir að óvinir Big boss í Afríku og Afganistan fái nýjan og betri búnað sendan. Þeir eru stöðugt að fá betri og betri útbúnað og aðlaga sig jafnvel að taktík þeirra sem spila leikinn. Það er nauðsynlegt að vera á tánum í Phantom Pain.
Metal Gear leikirnir hafa ávalt blandað saman alvarleika og gríni á mjög skemmtilegan máta. Það má ef til vill best sjá með pappakössum sem hægt er að nota sem fylgsni í leiknum.
Tilraunarsstarfsemi borgar sig í leiknum. Það er um að gera að prófa að sprengja upp mismunandi hluti og sjá hvaða áhrif það hefur. Það er jafnvel hægt að nota sprenginar til að villa um fyrir óvinum.
Phantom Pain er einfaldlega stórskemmtilegur leikur að spila og einnig er hægt að spila hann með vini í gegnum internetið. Endurspilunargildi leiksins er mjög mikið þar sem það er alveg ótrúlegt magn af földu góðmeti, sem getur auðveldlega farið fram hjá manni, og hægt er að spila hann á mismunandi vegu.