Fumlaust, óheft, leikandi létt Jónas Sen skrifar 15. september 2015 13:30 Arngunnur Árnadóttir
Verk eftir Mozart, Schumann og Jórunni Viðar Fimmtudagur 10. september. Flutningur: Sinfóníuhljómsveit ÍslandsStjórnandi: Cornelius MeisterEinleikari: Arngunnur Árnadóttir Rétt eins og Hafnfirðingabrandarar þá er til fullt af klarinettubröndurum. Hér er einn: Hver er munurinn á klarinettu og lauk? Svar: Enginn grætur þegar þú skerð klarinettuna niður í litla bita. Annar: Hvað kallarðu hóp klarinettuleikara í heitum potti? Grænmetissúpu. Sá þriðji: Hverju kastarðu til drukknandi klarinettuleikara? Klarinettutöskunni. Ég veit ekki af hverju klarinettuleikarar eru svo forsmáðir að fólki er ráðlagt að bjarga þeim EKKI ef þeir eru að drukkna. Ég veit bara að ég myndi henda mér út í ef Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari væri í slíkum aðstæðum. Ekki nema til að fá að heyra hana spila Mozart aftur. Einleikur hennar með Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem hún spilaði konsertinn í A-dúr var með því fegursta sem ég hef lengi heyrt. Það var eitthvað ótrúlega ferskt við túlkunina. Hægi kaflinn var hrífandi einlægur, unaðslega mjúkur og dreymandi. Hröðu kaflarnir voru sömuleiðis fumlausir, óheftir og leikandi léttir. Hljómsveitin spilaði líka af aðdáunarverðri fagmennsku undir öruggri stjórn Cornelius Meister. Hljómsveitarleikurinn var notalega blátt áfram og tæknilega nákvæmur. Þetta var dásamlegur flutningur. Tvö önnur verk voru á dagskránni. Annað var stutt og nefndist Eldur eftir Jórunni Viðar. Tónlistin skartaði grípandi laglínum en virkaði nokkuð sundurlaus. Enda var hún samin sem balletttónlist, átti greinilega að falla að tiltekinni atburðarás. Það væri gaman að heyra Eld og sjá dansinn við hann. Tónlistin hefur verið leikin áður á tónleikum, en dansinn hefur vantað. Án hans er verkið aðeins skugginn af sjálfu sér. Meira var varið í Vorsinfóníu Schumanns. Þetta er fyrsta sinfónía tónskáldsins, kölluð svo vegna þess hve glaðleg hún er. Schumann þjáðist af geðhvarfasýki. Þegar hann var í maníu samdi hann og samdi, stundum á undraskömmum tíma. Árið 1841 var hamingjuríkur tími í lífi hans og hann skutlaði sinfóníunni á blað á fjórum dögum. Hljómsveitin lék prýðilega undir stjórn Meisters, túlkunin var full af ákefð. Strengirnir voru breiðir og safaríkir, blásararnir pottþéttir. Heildarmyndin var kraftmikil og litrík, akkúrat eins og verkið átti að hljóma. Maður hálfpartinn dansaði út í náttmyrkrið á eftir. Niðurstaða: Frábær Mozart þar sem Arngunnur Árnadóttir fór á kostum. Schumann kom líka vel út.
Menning Tónlistargagnrýni Mest lesið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Fleiri fréttir Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira