Klassískir og góðir réttir: Spaghetti Bolognese eva laufey kjaran skrifar 21. september 2015 15:00 Vísir/Stöð 2
Létt og gott salat ‘Insalata Caprese' Þetta salat inniheldur kannski ekki mörg hráefni en engu að síður er þetta algjör veisla fyrir bragðlaukana. Það er nefnilega þannig að þegar góð hráefni eiga í hlut þá er algjör óþarfi að flækja málin. Einfalt, fljótlegt og ómótstæðilega gott.1 askja kirsuberjatómatar2 kúlur mozzarellafersk basilíkublöð1 pakki hráskinka eða eins og 6 hráskinkusneiðar1 skammtur basilíkupestóBasilíkupestó:1 höfuð fersk basilíkaHandfylli fersk steinselja150 g ristaðar furuhnetur50 g parmesanostur1 hvítlauksrifSafi úr hálfri sítrónu1 dl góð ólífuolíaSalt og nýmalaður pipar Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smá ólífuolíu yfir og kryddið þá til með salti og pipar. Bakið við 180°C í 20 mínútur. Útbúið pestóið á meðan tómatarnir eru í ofninum. Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, geymið í kæli þar til þið ætlið að bera réttinn fram. Raðið hráskinku á fallegt fat eða disk, rífið niður mozzarella og dreifið yfir, raðið tómötum og basilíkublöðum ofan á. Að lokum setjið þið nokkrar matskeiðar af pestói yfir réttinn og berið einnig pestóið fram með réttinum í sér skál. Spaghetti Bolognese eða hakk og spagettí eins og við viljum kalla það stendur alltaf fyrir sínu. Hakk og spagettí ‘Spaghetti Bolognese' Spaghetti Bolognese eða hakk og spagettí eins og við viljum kalla það stendur alltaf fyrir sínu. Það hafa líklega flestir smakkað þennan rétt en hann er vinsæll víða um heim. Þegar ég var yngri var þessi réttur í miklu eftirlæti og það var mikið sport að vefja spagettíinu upp á gaffalinn og ná því í heilu lagi.1 msk. ólífuolía100 g beikon1 laukur2 stilkar sellerí2 hvítlauksrif600 g nautahakkSalt og nýmalaður pipar1 nautakjötsteningur + 2 dl soðið vatn1 krukka niðursoðnir tómatar3 lárviðarlauf1 msk. tómatpúrraFersk basilíkaHandfylli fersk steinseljaAðferð1. Hitið smá ólífuolíu á pönnu.2. Skerið niður beikon í litla bita og steikið þar til það er stökkt. Skerið sellerí, lauk og pressið hvítlauk. Bætið selleríi og lauk út á pönnuna og steikið, bætið hvítlauknum saman við í lokin.3. Bætið hakkinu út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.4. Þegar hakkið er tilbúið þá bætið þið einni krukku af pastasósu út á pönnuna og nautasoði.5. Setjið þrjú lárviðarlauf saman við en takið þau upp úr réttinum áður en þið berið hann fram.6. Saxið niður ferska steinselju og basilíku, sáldrið yfir hakkið.7. Sjóðið spagettí samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.8. Berið fram með parmesanosti og hafið nóg af honum.Einfalt hvítlauksbrauð1 baguette-brauðólífuolía2 hvítlauksrif1 dós sýrður rjómi1 tsk. dijon-sinnepSalt og nýmalaður piparRifinn mozzarella-osturNýrifinn parmesan-osturSteinselja Blandið saman sýrðum rjóma, pressuðum hvítlauk, ólífuolíu, salti og pipar í skál. Skerið baguette-brauðið eftir endilöngu og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið hvítlauksblöndunni yfir brauðsneiðarnar og sáldrið rifnum osti yfir. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Saxið niður ferska steinselju og dreifið yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum.
Eva Laufey Pastaréttir Uppskriftir Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Fleiri fréttir Ofurfæðis súkkulaðikaka slær í gegn í skammdeginu Vegan próteinbomba að hætti Kolbeins Arnbjörnssonar Kraftmikill grænn safi fyrir öfluga húð Sjá meira