Laxá í Kjós gaf 137 laxa í liðinni viku Karl Lúðvíksson skrifar 20. júlí 2015 11:30 Margrét jóhannsdóttir threytir fyrsta flugulaxinn sinn í Laxá í Kjós Mynd: Haraldur Eiríksson
Laxá í Kjós fór frekar hægt af stað eins og fleiri ár á suðvesturlandi en veiðin hefur verulega aukist síðustu daga. Áin fór undarlega seint af stað miðað við það sem oft gengur og gerist í henni en hún á sum árin sterka opnun og heldur dampi og stígandi veiði í kjölfarið á því. Hún var heldur sein í gang núna en miðað við fréttir úr ánni hefur veiðin glæðst heldur betur síðustu daga. Síðasta vika í Laxá í Kjós gaf 137 laxa en veitt er á 8 stangir í ánni. Bugða hefur verið að koma ágætlega inn og eins hefur laxinn verið að ganga betur upp á efri svæðin en hann gerði í fyrstu. Má þar líklega finna skýringu í lágum vatnshita sem, eins og víða, heldur laxinum neðarlega í ánum í hlýrra vatni. Fleiri ár hafa fundið fyrir þessum skilyrðum þar sem lágur vatnshiti stoppar laxinn í göngu en sem dæmi hefur veiðin í Kjarrá verið afar dræm suma daga þegar áin er köld. Sömu sögu má segja um Langá en mikil veiði í ánni síðustu daga er öll á veiðistöðum neðan við laxastigann við Sveðjufoss en laxinn þarf að fara í gegnum hann á leið sinni upp á Fjall. Veðurspáin næstu 10 daga boðar engin sérstök hlýindi svo líklega verður eitthvað áframhald á því að laxinn komi sér fyrir á efstu veiðisvæðum ánna en það er þá bara meiri veiði fyrir vikið á neðri svæðunum.
Mest lesið Veiðivötn komin í 18.415 fiska Veiði Víðidalsá - Uppgjör 2011 Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn Veiði Tungufljót að taka við sér Veiði Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Veiði Eystri Rangá komin yfir 3.000 laxa Veiði Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Veiði Hraunsfjörður fer að vakna Veiði Boltar í hamslausu Tungufljóti Veiði