Vidal klár með fimm ára samning við Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2015 20:13 Arturo Vidal fagnar marki Síle í Suður-Ameríkukeppninni með því að stökkva upp á félaga sína. Vísir/EPA
Arturo Vidal hefur gert fimm ára samning við Real Madrid samkvæmt heimildum spænska blaðsins Sport en hann hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með bæði Juventus og landsliði Síle. Arturo Vidal hefur verið orðaður við nokkur lið á undanförnum vikum en hann hefur líka verið í sviðsljósinu eftir frábæra frammistöðu sína með landsliði Síle í Suður-Ameríkukeppninni. Vidal er upptekinn í Suður-Ameríkukeppninni en það var umboðsmaður hans, Fernando Felicevich, og framkvæmdastjóri Real Madrid, Jose Angel Sanchez sem hafa gengið frá samningnum. Real Madrid á þó enn eftir að ganga frá kaupverðinu við Juventus en ítalska liðið vill fá 30 milljónir evra fyrir leikmanninn. Arturo Vidal klessti sportbílinn sinn undir áhrifum í miðri Suður-Ameríkukeppninni og samkvæmt frétt spænska blaðsins munu þessu vandræði leikmannsins utan vallar hjálpa Real Madrid mönnum við að lækka aðeins kaupverðið. Meðal þeirra félaga sem Arturo Vidal var orðaður við var enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal en hann vill frekar flytja til höfuðborgar Spánar en norður til London. Arturo Vidal átti ágætt tímabil með Juventus sem vann tvöfalt á Ítalíu. Í deildinni var hann með 7 mörk og 4 stoðsendingar í 28 leikjum. Vidal er annar markahæsti leikmaður Suður-Ameríkukeppninnar með 3 mörk og 1 stoðsendingu í 5 leikjum en Síle spilar þar til úrslita á móti Argentínu.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira