Mercedes íhugar blæjujeppa Finnur Thorlacius skrifar 7. júlí 2015 13:00 Mercedes Benz G-Class blæjujeppi, sem ekki er lengur framleiddur.
Fyrir tveimur árum síðan ákvað Mercedes Benz að hætta framleiðslu síns eina blæjujeppa, G-Class Geländerwagen, sem fyrirtækið hafði framleitt samfleytt í 34 ár. Núna er aftur komið á dagskrá að framleiða blæjujeppa þó ákvörðun hafi ekki verið tekin, né heldur hvaða bíll úr jeppalínu Mercedes fengi þessa meðferð. Mercedes Benz telur að það sé markaður fyrir slíkan bíl þó hann sé ekki stór. Það er ekki að spyrja að Mercedes Benz þessa dagana er kemur að því að uppfylla allar hugsanlegar þarfir viðskiptavinanna, enda hefur bílgerðum þeirra stórfjölgað á síðustu árum og salan stóraukist fyrir vikið. Þessar upplýsingar voru fengnar frá Wolf-Dieter Kurz yfirmanni sportbíladeildar Benz. Hann viðurkenndi í leiðinni að á stærsta bílamarkaði heims, Kína, væri ekki mikill markaður fyrir svona bíl þar sem Kínverjar kjósi áfram stóra lúxusjeppa og vildu ekki hafa þá topplausa. Aðrar markaðir væru þó móttækilegri fyrir svona bílum. Þegar Mercedes Benz ákvað að hætta framleiðslu G-Class með blæju stóðu aðeins eftir jepparnir Jeep Wrangler og Land Rover Discovery sem í boði eru með blæju. Þannig er staðan í dag, en gæti semsagt breyst á næstunni.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent