Fótbolti

Zoran hættur hjá Selfossi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Rafn stýrir nú bæði karla- og kvennaliði Selfoss.
Gunnar Rafn stýrir nú bæði karla- og kvennaliði Selfoss. Vísir/Ernir
Zoran Miljkovic hætti í dag sem þjálfari 1. deildarliðs Selfoss eftir slæmt gengi liðsins framan af sumri. Þetta kemur fram á sunnlenska.is en Selfyssingar sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis í dag.

Zoran tók við liðinu síðastliðið haust en undir hans stjórn hefur liðið unnið aðeins tvo af fyrstu tíu deildarleikjum sínum og er í tíunda sæti deildarinnar með níu stig.

Selfoss tapaði um helgina fyrir Þór á Akureyri, 2-1, eftir að hafa komist yfir í leiknum.

Gunnar Rafn Borgþórsson kemur nú inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla en hann hefur stýrt kvennaliði félagsins með góðum árangri. Hann mun stýra karlaliðinu ásamt Jóni Steindóri Sveinssyni og Elíasi Erni Einarssyni.

Selfoss tekur á móti toppliði Þróttar á heimavelli á mánudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×