Fótbolti

Gunnlaugur Fannar tryggði Haukum fyrsta útisigurinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Haukarnir fögnuðu sigri í kvöld.
Haukarnir fögnuðu sigri í kvöld. vísir/daníel
Haukar unnu Selfoss, 1-0, í fyrsta leik áttunda umferðar 1. deildar karla í fótbolta á JÁVERK-vellinum á Selfossi í kvöld.

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson tryggði gestunum úr Hafnarfirði sigurinn með eina marki leiksins á 42. mínútu.

Þetta er fyrsti útisigur Hauka í 1. deildinni í sumar, en fyrir leikinn í kvöld var liðið búið að vinna alla þrjá heimaleiki sína en tapa öllum fjórum á útivelli.

Haukar lyftu sér upp fyrir Grindavík í sjötta sæti deildarinnar með sigrinum, en Selfoss er áfram í áttunda sæti með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×