Sonur Michael Schumacher vann Formula 4 í fyrstu tilraun Finnur Thorlacius skrifar 27. apríl 2015 14:41 Mick Schumacher er nauðalíkur föður sínum og greinilega líka hæfur ökumaður.
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni segir einhversstaðar og það á líklega við hér. Sonur Michael Schumacher, Mick, tók þátt í sínum fyrsta Formula 4 kappakstri í Þýskalandi um helgina og gerði sér lítið fyrir og vann eina af þremur keppnum helgarinnar. Hann varð níundi í þeirri fyrstu á föstudaginn, tólfti á laugardaginn en fyrstur í gær, sunnudag. Alls ekki slæmur árangur það hjá nýliða og mjög í stíl við árangur föður hans. Því miður var pabbi hans ekki viðstaddur þegar hann náði þessum óvænta árangri, en hann er enn að ná sér eftir hræðilegt skíðaslys sem hann lenti í um jólaleitið árið 2013. Mick var samt ekki með neinn aukvisa sér til aðstoðar því fréttir herma að Sebastian Vettel hafi verið honum til ráðlegginga um helgina. Annar ungur ökumaður tók þátt í kappakstrinum, Harrison Newey, sem er sonur Adrian Newey er hannaði alla sigurbíla Red Bull á þeim árum sem sigurganga þeirra stóð sem hæst. Adrian náði sjöunda sæti fyrsta daginn, þrettánda þann næsta og tuttugasta og sjöunda sæti á lokadeginum.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent