Matur

Eva Laufey gerir dýrindis dögurð

Eva Laufey Hermannsdóttir er eldar hér dýrindis dögurð, eða bröns.

Hún gerir amerískar pönnukökur, býr til bláberjasíróp, gerir kartöfluböku með Chorizo pylsu og eggjum.

Hún útbýr einnig ávaxtaplatta og gerir jógúrt með heimalöguðu granola, berjum og hunangi. Að lokum blandar hún mímósu til að skola kræsingunum niður með.

Hægt er að horfa á Evu útbúa veisluna í spilaranum hér fyrir ofan. Atriðið er úr fjórða þætti Matargleði Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.

Bláberjasíróp

3 dl sykur

3 dl bláber, fersk eða frosin

safi og börkur af einni sítrónu

Aðferð:

Hitið sykur og appelsínusafa í potti, þegar sykurinn er bráðnaður og þetta lítur út eins og síróp má bæta bláberjum, sítrónuberki og safa út í pottinn og hræra vel í blöndunni. Leyfið bláberjasírópinu að malla við vægan hita í 30 – 40 mínútur.

Morgunverðarkartöflubaka með Chorizo pylsu

1 msk ólífuolía

2 stórir laukar, smátt skornir

200 gr chorizo pylsa, smátt skorin

1 rauð paprika

2 hvítlauksrif, marin

4 bökunarkartöflur, skornar í teninga

salt og nýmalaður pipar

4 – 5 egg

fersk steinselja

Aðferð:

Hitið ofninn i 180°. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn við vægan hita þar til laukurinn verður mjúkur. Bætið chorizo pylsunni, paprikunni og hvítlauknum út á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur. Bætið kartöfluteningum saman við og kryddið með salti og pipar.

Setjið blönduna í eldfast mót þegar kartöflurnar eru eldaðar í gegn. Brjótið eggin yfir og bakið við 180°C í ca. 10 mínútur eða þar til eggin eru fullelduð. Þegar kartöflubakan kemur út úr ofninum er gott að saxa niður ferska steinselju og strá yfir réttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.