Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 20-33 | Svart kvöld í handboltasögu FH Henry Birgir Gunnarsson í Kaplakrika skrifar 5. mars 2015 11:52 Jón Þorbjörn vísir/pjetur
Það var eins gott að það var frítt í Krikann í kvöld því handboltinn sem FH bauð upp á var ekki krónu virði. Þeir voru niðurlægðir af erkifjendum sínum í Haukum sem hefðu getað flengt þá enn fastar ef þeir hefðu einfaldlega nennt því.Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Kaplakrika í kvöld og tók myndirnar sem fylgja umfjölluninni. Fyrri hálfleikurinn í kvöld er einn sá ótrúlegasti sem ég hef séð. FH-ingar mættu nokkuð vængbrotnir til leiks en það afsakar engan veginn það handboltalega gjaldþrot sem liðið bauð upp á. Haukarnir keyrðu yfir þá strax frá fyrstu mínútu og FH-ingar nenntu ekki að veita þeim nokkurt viðnám. Þeir skoruðu að vild og höfðu nákvæmlega ekkert fyrir því. Sóknarleikur FH var svo lélegur að hann kallaði eiginlega á fangelsisvist á þá leikmenn sem mættu í sókn. Skotin glórulaus og illa ígrunduð, sóknarleikurinn tilviljanakenndur og viljinn enginn. Þetta var bara glórulaust og FH-ingar áttu að skammast sín fyrir þennan leik og þetta andleysi. Það var verið að keyra yfir FH og þeim virtist vera skítsama. Afsakið orðbragðið. Haukar komust í 1-12 og annað mark FH kom ekki fyrr en eftir 17 mínútna leik. Mestur var munurinn 13 mörk, 2-15 eftir 23 mínútur, og þá var Giedrius með yfir 80 prósent markvörslu og skotnýting Hauka sömuleiðis.Jóhann Birgir Ingvarsson sækir að vörn Hauka.vísir/pjeturFH-ingar rönkuðu aðeins við sér undir lokin og munurinn 11 mörk i hálfleik, 7-18. Ótrúlegur hálfleikur hjá þessum erkifjendum þar sem spennan er venjulega í hámarki. Það var engu líkara en Haukamenn hefðu farið heim í hálfleik því þeir virtust ekki nenna að spila seinni hálfleikinn. FH-ingar sýndu að það er stolt í liðinu því þeir börðust af alefli. Hefðu reyndar að ósekju mátt gera það í fyrri hálfleik líka. Í stöðunni 14-21 leist Patreki, þjálfara Hauka, ekki á blikuna og tók leikhlé. Veitti ekki af. Þurfti helst að henda vatni í andlitið á hans mönnum og minna á að þeir yrðu að gefa meira en 2 prósent í síðari hálfleikinn. Það leikhlé skilaði sínu því hans menn tóku við sér og hófu að spila handbolta á nýjan leik. Um leið jókst munurinn aftur og sú litla von sem var komin í FH-liðið hvarf. Giedrus magnaður í marki Hauka og ef hann hefði spilað meira þá hefðu Haukar unnið stærra. Einar fann sig engan veginn. Annars var liðsheildin mögnuð hjá Haukum og erfitt að tína aðra úr. Magnús Óli var sá sem sýndi mest stolt í liði FH í kvöld. Jóhann Birgir beit líka frá sér þó lítið hefði gengið upp hjá honum. Frammistaða flestra annarra var einfaldlega skammarleg.Halldór Jóhann Sigfússon horfði upp á afhroð sinna manna.vísir/pjeturHalldór: Þetta var óafsakanlegt „Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að útskýra þetta," sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, þegar hann var beðinn um að útskýra hrunið hjá hans mönnum í kvöld. „Þetta var lélegt í alla staði. Við mættum ekki til leiks á meðan Haukarnir voru mjög góðir. Það var eins og það væru auka tíu kíló á hverjum manni hjá mér. Við sáum aldrei til sólar í dag." Eins og við mátti búast var Halldór mjög daufur í dálkinn og eflaust í léttu losti eftir þennan leik. „Ég vil ekki afsaka þetta því þetta var óafsakanlegt. Við eigum að geta mikið betur. Ég ætlast til meiru af mínu liði og ég tala nú ekki um í svona bæjarslag. Við vorum andlega og líkamlega fjarverandi í þessum leik." Halldór segist hafa lent í ýmsu á sínum ferli en sagði að þetta tap væri eitt það sárasta og lélegasta sem hann hefði lent í. Hann sagðist samt ekki hafa skammast sín er hann horfði upp á niðurlæginguna í fyrri hálfleik. „Ég skammast mín aldrei fyrir strákana en það var vissulega erfitt að horfa upp á þetta. Við reyndum allt sem við gátum en það breyttist ekki neitt." Það vantaði marga í lið FH í kvöld og því var Halldór sjálfur í búningi. Hann sagði þó aldrei hafa komið til greina að hann spilað og Halldór bjóst heldur ekki við því að vera aftur á skýrslu.Patti var sáttari þjálfarinn í kvöld.vísir/pjeturPatrekur: Vorum mjög góðir „Ef maður tekur mið af leikjum okkar við FH í vetur þá var þetta ekki beint niðurstaða sem maður átti von á," sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, eftir stórsigurinn á FH í kvöld. „Við spiluðum mjög góðan varnarleik og náðum að leysa mjög vel þegar Ásbjörn var vinstra megin. Við stóðum mjög þéttir og náðum að refsa þeim. Þetta var mjög góður leikur í dag." Patrekur vildi sem minnst tala um FH-liðið. Líklega kennt í brjósti um þá eftir þessa frammistöðu sem þeir buðu upp á. „Ég horfi bara á mitt lið. Við vorum að vinna okkar vinnu mjög vel. Hver svo sem ástæðan er fyrir þessari spilamennsku FH í kvöld er höfuðverkur annarra," sagði þjálfarinn en hann var einnig ánægður með hversu vel honum gekk að rúlla á liðinu. Staða leiksins bauð upp á að allir gátu spilað og menn ættu að vera ferskir eftir leikinn. Haukarnir þurftu á stigunum að halda í kvöld enda gengi liðsins framan af móti valdið vonbrigðum. „Við viðurkennum alveg að við spiluðum ekki nógu vel fyrir áramót hver svo sem ástæðan var fyrir því. Við vitum vel að við getum spilað góðan handbolta og ætlum okkar ofar í töfluna. Mér finnst alltaf gaman að vinna handboltaleiki. Alveg sama á móti hverjum og hvernig."
Olís-deild karla Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Fleiri fréttir Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“