Hekla frumsýnir nýjan Touareg Finnur Thorlacius skrifar 27. febrúar 2015 10:01 Volkswagen Touareg.
Eftir nýjum Volkswagen Touareg hefur verið beðið með eftirvæntingu ansi lengi en nú er sú bið á enda. Bíllinn er kominn til landsins og Hekla kynnir hann á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16 og býður áhugasömum að koma og kynnast þessum jeppa frá Volkswagen. Nýr Touareg er merkisberi þýskra gæða, hugvits og þæginda. Valmöguleikarnir eru nær ótakmarkaðir í Touareg og hægt að sérsníða hann að óskum flestra. Öflugar V6 3.0 TDI vélar sem tengdar eru við 4Motion fjórhjóladrifið og koma farþegum auðveldlega yfir holt og hæðir og með íslensku leiðsögukerfi á hann líka auðvelt með að rata til baka. Fá má loftpúðafjöðrun í bílinn og Panorama sólþak svo að sólin skíni alltaf á farþega. Með R-Line pakka fær Touareg sportlegt yfirbragð með R-line stuðara og framgrilli, krómstútum á púströrum, vindskeið, Alcantara leðursætum og fleiru. Hægt er að gera aksturinn enn auðveldari með bílastæðaaðstoð, utanvegaaðstoð, sjálfvirkri stýringu á aðalljósum, hliðarvara og akreinavara, lyklalausu aðgengi, bakkmyndavél, 360 gráðu myndavél og snertilausri opnun á afturhlera, svo fátt eitt sé nefnt.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent