Arctic Trucks selur kínversku pólarstofnuninni Finnur Thorlacius skrifar 13. febrúar 2015 09:29 Toyota Hilux breyttur af Arctic Trucks fyrir akstur á suðurskautinu.
Arctic Trucks hefur gengið frá samningi við Kínversku Pólarstofnunina (PRIC – Polar Research Institude of China) um smíði á tveimur sérútbúnum og mikið breyttum bílum sem stofnunin mun nota til ýmissa verkefna er tengjast starfsemi þeirra á Suðurskautslandinu. Arctic Trucks smíðar bílana á grunni Toyota Hilux. Breytingin felur í sér að skipt er um grind í bílunum og sett í ný grind sem Arctic Trucks hefur hannað og smíðað. Þá eru gerðar miklar breytingar á drifbúnaði og yfirbyggingu auk þess sem í bílunum eru fjölmargar sérhæfðar lausnir, þar með talið 6 hjóla drif fyrir 44 tommu dekk. Burður bílsins er þrefaldaður og olíutankar taka 650 lítra, en bílunum er breytt til að aka á flugvélaeldsneyti. Innifalið í samningnum er einnig þjálfun á íslenskum jöklum fyrir starfsmenn stofnunarinnar, en sú þjálfun mun fara fram næsta sumar. Arctic Trucks hefur í vaxandi mæli lagt áherslu á alþjóðlega þjálfun í fjallamennsku og hefur komið að þjálfun fyrir lögreglu, hermenn nokkurra landa og fjölmargar pólarstofnanir. Kínverska Pólarstofnunin hefur byggt upp vísindastöð á „Dome A“ sem liggur hærra en nokkur önnur pólarstöð á Suðurskautslandinu. Vegna hæðarinnar og mikils kulda er starfsemin þar mikil áskorun bæði fyrir tæki og menn og munu bílar Arctic Trucks hafa mikilvægu hlutverki að gegna. Arctic Tucks hefur nú þegar breytt 22 bílum til notkunar á Suðurskautslandinu sem eru í notkun hjá mörgum af stærstu pólarstofnunum heims. Hafa þeir samanlagt ekið yfir 220 þúsund kílómetra uppi á hásléttunni. Bílar Arctic Trucks og starfsmenn hafa brotið blað í ferðalögum á þessum svæðum, ferðast lengra, hraðar og margfalt hagkvæmar en áður hefur þekkst. Fjölmörg heimsmet hafa verið sett í leiðöngrum félagsins, bæði varðandi hraða og vegalengd. Frá árinu 2008 hefur Arctic Trucks sent menn til Suðurskautslandsins, ýmist vegna þátttöku í leiðöngrum eða til að sinna viðhaldi þeirra bíla sem þar eru staðsettir. Á þessu ári hafa sex starfsmenn Arctic Trucks verið við vinnu á Suðurskautslandinu, þar af tóku tveir menn á tveimur 6x6 bílum þátt í að styðja Massey Ferguson dráttarvél í leiðangri á Suðurpólinn. Þá tóku tveir starfsmenn og bílar þátt í vísindaleiðangri fyrir brasilísku pólarstofnunina. Þess má geta að sérsmíðaður sexhjóla bíll frá Arctic Trucks verður til sýnis á Jeppasýningu Toyota sem haldin verður í Kauptúni í Garðabæ á morgun, laugardag.Þjálfun Arctic Trucks á Vatnajökli.
Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent Frægt fólk meðal handtekinna í New York Erlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent