Land Rover gaf þúsund 66°Norður úlpur Finnur Thorlacius skrifar 19. febrúar 2015 10:14 Starfsmenn fengu gular úlpur en blaðamenn svartar.
Land Rover hefur síðustu tvo mánuði kynnt hinn nýja og glæsilega jeppa Land Rover Discovery Sport hér á Íslandi. Um þúsund blaðamenn og starfsmenn á vegum Land Rover hafa komið til landsins frá því í desember til þess eins að reynsluaka bílnum í íslenskum vetraraðstæðum. Land Rover færði öllum blaðamönnum sem komu víðs vegar að úr heiminum til þess að reynsluaka jeppanum hér á landi, úlpu frá íslenska fataframleiðandanum 66°Norður að gjöf. Um var að ræða Þórsmörk Parka sem er með veglegustu úlpum frá 66°Norður. Blaðamenn voru að vonum hæstánægðir með jeppann sem og úlpurnar sem hafa komið sér vel í vetrarveðrinu undanfarið. ,,66°Norður varð fyrir valinu þar sem fatnaður fyrirtækisins er í hæsta gæðaflokki og hentar við ólíkar og krefjandi aðstæður. Það var því okkar mat að 66°Norður passi mjög vel við Land Rover og erum við afar ánægð með að hafa valið Þórsmörk Parka úlpurnar frá fyrirtækinu enda stóðu þær undir væntingum og það var mikil ánægja með þær hjá hinum mikla fjölda blaðamanna sem komu til Íslands að reynsluaka bílnum," segir Nanda Nengerman sem sá um skipulagningu viðburðarins fyrir Land Rover. Fjallað er um hinn nýja Land Rover Discovery Sport í reynsluakstrinum á Íslandi í blöðum, tímaritum og ljósvakamiðlum víða um heim og líklegt er að 66°Norður Þórsmörk Parka úlpurnar fái einnig sinn skerf af athyglinni.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent