Langlundargeð lúinna Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 31. desember 2014 07:00 Ég heyrði á tal afgreiðslustúlknanna frammi í búðinni gegnum jólatónlistina. Ég var á bak við tjald að máta kjól, taldi mig loksins búna að finna jólakjólinn. Mér leiðist ekkert að skoða föt í búðum og hafði eytt bróðurparti kvöldsins í Kringlunni á rápi milli verslana. Stoppaði í millitíðinni til að fá mér hressingu, kaffifrappó með þeyttum rjóma og var einmitt að svolgra í mig síðasta sopann, rjómablandaðan úr botninum, þegar ég heyrði aðra afgreiðslustúlkuna segja við hina að hún hefði ekkert komist í kvöldmat. Klukkan var langt gengin í tíu. Önnur afgreiðslustúlka leitaði lengi á lagernum fyrir mig að umbúðum sem ekki sæist í gegnum svo sá sem var með mér í búðinni sæi ekki hvað ég var að kaupa. Ég tafði hana með þessu en hún rétti mér pokann brosandi og óskaði mér gleðilegra jóla áður en hún sneri sér að næsta. Í annarri verslun gerði stúlkan á kassanum grín að sjálfri sér þegar hún nefndi allt aðra upphæð við mig en stóð á skjánum, „það er greinilega komið að háttatíma hjá mér“, sagði hún hlæjandi. Strákurinn sem afgreiddi mig í Hagkaupi rétt fyrir lokun baðst afsökunar á stórum geispa sem hann gat ekki með nokkru móti hamið. Spurði mig svo hvort ég væri ekki bara í góðu skapi samt. Á eftir mér var löng röð af fólki sem hann átti eftir að afgreiða en ég dólaði mér heim. Kvöldið hafði verið hið ljúfasta, hjá mér. Í blöðunum las ég lýsingar starfsmanns í verslun sem hafði verið sleginn utan undir af viðskiptavini. Öðrum hafði verið úthúðað fyrir að spyrja hversu marga poka viðskiptavinurinn ætlaði að nota og fleiri höfðu verið grættir af argandi frekjuhundum. Dónaskapur gagnvart afgreiðslufólki er fastur liður í jólastressinu, svo fastur að búin voru til sérstök barmmerki til að minna fólk á að sýna því kurteisi. Þau sem afgreiddu mig dauðlúin undir kvöld í Kringlunni þurftu þó engin barmmerki til að minna sig á að brosa til mín. Ég vona að þau hafi átt notaleg jól. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Niðurlæging Íslensku Hamingjuþjóðarinnar Sigurður Sigurðsson Skoðun Nýju fötin keisarans og „óráð“ forsetans Ágúst Kvaran Skoðun Að breyta lofti í stein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Litlir karlar sem leiðist lýðræði Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lærum af sögunni: Segjum NEI við ESB! Jón Gerald Sullenberger Skoðun Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Í stríði við náttúruna - baráttan um landið Ólafur Valsson Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun