„Einu sinni prófaði ég að gera köku ársins 2014 sem var ópalsúkkulaðikaka og vinnufélagarnir vildu meina að mín kaka væri betri en alvöru kaka ársins, það var meira að segja smakkpróf. Þannig þróaðist það að ég fór að vinna með ópalsúkkulaði og þessi eftirréttur varð til. Mér finnst ágætt að nota vinnufélagana í að smakka hitt og þetta og þeir voru á því að eftirrétturinn væri hrikalega góður,“ segir Eyjólfur og bætir við að hann sé virkilega virkur í eldhúsinu, sérstaklega eftir tilkomu hrærivélarinnar.

Ópalsúkkulaðimús
4 eggjahvítur
4 eggjarauður
80 g flórsykur
200 g suðusúkkulaði
rauður Ópal
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og teknar til hliðar. Eggjarauðurnar eru þeyttar saman við flórsykurinn þar til blandan verður létt og ljós. Ópalið er brætt í örbylgjuofni og svo sett með súkkulaðinu sem er brætt yfir vatnsbaði. Ópalsúkkulaðiblöndunni er blandað saman við eggjarauðurnar og flórsykurinn. Eggjahvítunum er svo bætt rólega við með sleikju. Súkkulaðimúsinni er síðan hellt í form eða krukku og hún sett í ísskáp.
Karamellusúkkulaðimús
4 eggjahvítur
4 eggjarauður
80 g flórsykur
200 g karamellusúkkulaði (til dæmis karamellu-Pipp)
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og teknar til hliðar. Eggjarauðurnar eru þeyttar saman við flórsykurinn þar til blandan verður létt og ljós. Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og svo blandað saman við eggjarauðurnar og flórsykurinn. Eggjahvítunum er bætt rólega við með sleikju. Loks er karamellusúkkulaðimúsinni hellt ofan á ópalsúkkulaðimúsina og allt saman kælt í ísskáp í lágmark tvær klukkustundir.
Gott er að hafa þeyttan rjóma með.