Gagnrýni

Reið er áferðarfallegt verk

Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar
Af sviðinu "Tónlistin, búningarnir, lýsingin og frammistaða dansaranna, allt var þetta nær hnökralaust svo framvinda verksins var ljúf.“
Af sviðinu "Tónlistin, búningarnir, lýsingin og frammistaða dansaranna, allt var þetta nær hnökralaust svo framvinda verksins var ljúf.“ Mynd/Steve Lorens
DANS

Reið

Danshöfundar: Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Steinunn Ketilsdóttir

Tónlist: Andrea Gylfadóttir

Búningar: Jóní Jónsdóttir

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason 

Dansarar: Díana Rut Kristinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Gígja Jónsdóttir, Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Valgerður Rúnarsdóttir og Védís Kjartansdóttir



Sýningin Reið var síðasta verkið á Reykjavík dansfestival þetta árið. Verkið var sýnt á stóra sviði Borgarleikhússins og hafði því yfir sér nokkuð annan blæ en þau verk sem sýnd höfðu verið á minna sviði. Reið er áferðarfallegt verk og höfðaði sterkt til sjónræns fegurðarskyns áhorfenda. Tónlistin, búningarnir, lýsingin og frammistaða dansaranna, allt var þetta nær hnökralaust svo framvinda verksins var ljúf.



Verkið var þó full átakalítið svo værð sótti að áhorfendum. Þannig var fullkomið flæði danssmíðinnar of sjaldan brotið upp til að skapa spennu eða andstæður.



Athyglisverðar voru þó senur þar sem Védís Kjartansdóttir stóð eða gekk rólega um á meðan hinar hlupu. Kyrrðin sem fólst í stöðu hennar jók kraftinn í hlaupum hinna og búningur hennar, sem virkaði ljósari en hinna í þessum senum, dró fram áhugaverðar andstæður á sviðinu. Útfærsla efnisins var skemmtilega einföld og skýr svo fyrir þá sem eitthvað þekkja til hrossa var auðvelt að sjá hryssur í stóði ljóslifandi fyrir sér.

Niðurstaða: Áferðarfallegt en átakalítið verk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.